Dikta spilar á Háloftinu á morgun

Hjómsveitin Dikta mun halda tónleika nk. laugardagskvöld á Háaloftinu. Hljómsveitin mun gefa út nýja plötu í september en hún var tekin upp í �?ýskalandi og á Íslandi með þýskum upptökustjóra.. Nýjasta lag sveitarinnar Sink or Swim hefur fengið góða spilun í útvarpi og náð miklum vinsældum á Íslandi.

Hljómsveitin segist eiga gríðarlega góðar minningar frá því að spila í Eyjum og standi �?jóðhátíð 2010 þar upp úr. �?að sumar hafði lagið þeirra Thank You hlotið góðar viðtökur og segja hljómsveitameðlimir að rúmlega 17.000 gestir hátíðarinnar hafi tekið undir þegar lagið var spilað. �??Svoleiðis augnablik er eitthvað sem hverja hljómsveit dreymir um að eiga �?? segja meðlimir sveitarinnar.

Á tónleikunum á morgun mun sveitin spila ný lög í bland við gömul og segjast þeir hlakka til að spila á Háaloftinu. Tónleikarnir hefjast kl 23:00 og mun hljómsveitin Greyhound hita upp.

Miðaverð er 2900 kr. og er forsala hafin í Tvistinum.

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.