ÍBV er að reyna að fá systurnar og landsliðskonurnar Margréti Láru og Elísu Viðarsdætur í sínar raðir.
Báðar spiluðu þær með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili en Margrét Lára staðfesti á dögunum að hún sé á heimleið. Margrét og Elísa ólust upp hjá ÍBV og Eyjamenn vilja fá þær heim.
�??ÍBV er að sækjast er að sækjast eftir þeirra kröftum og málið er í þeirra höndum,” sagði Jón �?li Daníelsson íþróttafulltrúi ÍBV í samtali við Fótbolta.net í dag.
Fleiri félög í Pepsi-deild kvenna hafa áhuga á Margréti og Elísu en Valur hefur þar meðal annars verið nefnt til sögunnar.
Rasmus Christiansen, varnarmaður KR, er unnusti Elísu og hann gæti einnig verið að færa sig um set.
�?skar �?lafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, staðfesti í gær að Rasmus sé með tilboð frá Eyjamönnum en Valsmenn eru einnig að reyna að fá hann í sínar raðir eins og komið hefur fram.