Einn leikur fer fram í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld en klukkan 19:30 tekur HK á móti ÍBV í Digranesinu. ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar með átján stig og með sigri á HK geta þær komið sér á topp deildarinnar á ný, í bili að minnsta kosti en stelpurnar hafa þá leikið einum leik meira en önnur lið í deildinni vegna þátttöku í Evrópukeppninni en stelpurnar fljúga út til Serbíu og leika tvo leiki við serbneska liðið WHC Knjaz Milos Arandjelovac. HK er í 9. sæti deildarinnar en þær hafa tapað síðustu tveimur leikjum í röð.