Pétur blæs til Kótelettukvölds á Háloftinu 19. nóvember
�??Vil endilega láta alla vini mína vita af þessu frábæra kvöldi þ.e. fimmtudeginum 19. nóvember nk. en þá verður hið einstaka Kótelettukvöld haldið hér í Eyjum. Munið að skrá ykkur og borga staðfestingargjaldið og þá eru þið inni,�?? segir kótelettukóngurinn Pétur Steingrímsson á Fésbókarsíðu sinni.
Hann átti hugmyndina að Kótelettukvöldinu á Háaloftinu á síðasta ári sem heppnaðist frábærlega og nú er lagt upp með að gera enn betur. �??Kótelettukvöldin eru að ryðja sér til rúms um allt land og eru mjög vinsæl. Ástæðan fyrir því að ég fór af stað með þetta er að mér finnst kótelettur góðar, með Oragrænum, rauðkáli og rabbabarasultu. Snorri Jónsson verður veislustjóri eins og fyrra. Mun hann nú eins og þá segja eina sögu á móti hverri sem kemur úr sal,�?? segir Pétur og lofar skemmtilegu kvöldi.
Aðgangseyrir er 4500 krónur sem er sama verð og í fyrra. �??Fólk er beðið um að tilkynna komu sína á Fésbókarsíðu Kótelettuklúbbsins og borga miðana fyrir 15. nóvember með því að leggja inn á reikninginn okkar til að hægt verði að panta hráefni miðað við fjölda. �?úsund krónur af hverjum miða fara í styrktarsjóð Lions í Vestmannaeyjum,�?? sagði Pétur og hvetur hann fólk til að fjölmenna.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.