HK tók á móti ÍBV í Olís deild kvenna í kvöld. Bæði liðin voru lengi að koma sér í gang en fyrsta mark leiksins leit ekki dagsins ljós fyrr en á sjöttu mínútu. Jafnræði var með liðunum framan af, leikmenn ÍBV gerðu sig seka um marga tæknifeila en um miðjan fyrri hálfleik tók ÍBV öll völd á vellinum og breytti stöðunni úr 4-4 í 10-5. HK-stelpur náðu að halda í við lið ÍBV það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en ÍBV var með fjögurra marka forskot í hálfleik, 16-12.
ÍBV byrjaði síðari hálfleikinn mun betur og skoruðu þær fyrstu sjö mörk hálfleiksins en HK náði ekki að koma boltanum í netið fyrr en 15 mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Ungu stelpurnar í liði ÍBV fengu að spreyta sig í kvöld og stóðu þær sig vel. Sigur ÍBV var aldrei í hættu en þær sigruðu með níu marka mun, 31-22. ÍBV tyllti sér á topp deildarinnar með sigrunum, í bili að minnsta kosti en stelpurnar hafa spilað leik meira en önnur lið í deildinni vegna þátttöku í Evrópukeppninni en þær fljúga til Serbíu á morgun og leik þar tvo leiki.
Mörk ÍBV skoruðu þær: Greta Kavaliaauskaité 9, Díana Dögg Magnúsdóttir 7, Telma Amado 5, Vera Lopes 3, Sandra Gísladóttir 2, �?óra Guðný Arnarsdóttir 1, Selma Rut Sigurbjörnsdóttir 1, Drífa �?orvaldsdóttir 1, Ester �?skarsdóttir 1.