�?tboð á ræstingu og hár- og fótsnyrtingu :: Alþrif, ISS, Silvía Björk og Aníta Sif sendu inn tilboð
Í fjölskyldu og tómstundaráði voru kynnt tilboð í ræstingu á Hraunbúðum ásamt útboðum á hársnyrtingu og fótsnyrtingu.
Alls bárust þrjú tilboð frá tveimur aðilum í ræstinguna. Alþrif sendi inn eitt tilboð upp á 1.494.916 kr. á mánuði án VSK. ISS sendi inn tvö tilboð. Fyrra tilboðið hljóðar upp á 1.335.222 kr. á mánuði án VSK en síðara upp á 1.122.832 kr. Kostnaðaráætlun ársins 2016 er 1.134.667 kr. á mánuði. Verið er að fara yfir tilboðin og ákvörðun tekin á næstu dögum hvaða tilboði verði tekið.
Eitt tilboð barst í hársnyrtingu á Hraunbúðum en það var frá Silvíu Björk Birkisdóttur hársnyrti. Eitt tilboð barst í fótsnyrtingu en það var frá Anítu Sif Vignisdóttur löggiltum fótaaðgerðarfræðingi og meistara í snyrtifræði. Bæði tilboðin uppfylla forsendur útboðs og verður gengið til samninga við viðkomandi aðila.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.