Mjölnir mun opna útibú í Eyjum
Bardagafélagið Mjölnir mun opna útibú í Vestmannaeyjum. �?etta staðfestir Jón Viðar Arnþórsson í samtali við MMA Fréttir.
Mjölnir er um þessar mundir staðsett á Seljavegi 2 í gamla Loftkastalanum. Félagið mun þó flytja í �?skjuhlíðina þar sem Keiluhöllin var áður til húsa. Nú mun Mjölnir hins vegar opna annað útibú í fyrsta sinn.
�??Við stefnum á að opna í júní sumar,�?? segir Jón Viðar Arnþórsson, forseti Mjölnis. Eins og kom fram í frétt Morgunblaðsins í dag mun Mjölnir verða staðsett í húsnæði gamla Ísfélagsins í Eyjum.
�??Húsnæðið er mjög stórt, 350-380 fm salur og svo klefar. �?að þarf ekki að gera mikið fyrir húsnæðið ef við fáum það. Bara aðeins að mála og merkja.�??
Ekkert er um bardagaíþróttir í Vestamannaeyjum eins og er en það mun breytast í sumar. �??Til að byrja með verður þetta aðallega glíman og Víkingaþrek. Við munum koma til með að senda þjálfara þangað um helgar, einu sinni til tvisvar í mánuði, en annars þjálfa upp þjálfara. Svo eru nokkrir Mjölnismenn sem eru úr Eyjum og flakka mikið á milli sem munu koma til með að þjálfa þarna og margir sem vilja hjálpa til,�?? segir Jón Viðar að lokum.
MMA Fréttir greindi frá.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.