SÁÁ - Álfurinn seldur um land allt
�??Álfurinn fyrir unga fólkið�?? �?? salan stendur yfir frá 10. �?? 15. maí. �?� SÁÁ nýtir allan hagnað af álfasölu í þágu ungs fólks, barna og aðstandenda �?� Meðal sölufólks eru hópar úr Sindra, Rán í Vestmannaeyjum og knattspyrnukonur á Selfossi, skátar í Stokkeyri, Eyrarbakka og �?orlákshöfn og félagar í ungmennafélögum á Hellu, Hvolsvelli og Vík.
Árleg álfasala SÁÁ hefst um land allt þriðjudag 10. maí og stendur fram á sunnudaginn 15. maí. Hún er nú haldin í 27. skipti. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert. Allur ágóði af sölunni rennur til að greiða fyrir þjónustu SÁÁ við ungt fólk, bæði afeitrun og meðferð, sálfræðiþjónustu barna eða aðra þjónustu við fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Líkt og undanfarin ár er slagorð álfasölunnar í ár: �??�??Álfurinn fyrir unga fólkið�??�??. �?annig er undirstrikuð áhersla á meðferðarúrræði samtakanna fyrir ungt fólk og einnig fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Frá árinu 2000 hefur SÁÁ rekið unglingadeild á sjúkrahúsinu Vogi en frá því að sjúkrahúsið var byggt hafa yfir 8000 einstaklingar yngri en 25 ára lagst þar inn. SÁÁ veitir einnig sálfræðiþjónustu fyrir börn alkóhólista. Um 1.100 börn hafa nýtt þá þjónustu sem er kostuð með tekjum af Álfinum og öðrum styrkjum. �?að sama á við um viðtöl, ráðgjöf og námskeið sem samtökin veita öðrum aðstandendum.
Álfasala SÁÁ er eitt umfangsmesta fjáröflunarverkefni á vegum almannasamtaka hér á landi á hverju ári. Frá 1990 hefur Álfurinn skilað samtökunum um 600 milljónum króna í hreinar tekjur.
Víða um land �?? þar á meðal á Suðurlandi �?? er salan ekki aðeins liður í fjáröflun SÁÁ því að sölufólk er oft úr hópum á vegum íþróttafélaga eða annarra samtaka og hópa sem nota vegleg sölulaunin til þess að greiða fyrir ferðalög eða kosta eigið félagsstarf í heimabyggð. Meðal þeirra sem selja Álfinn í ár er hópur sem stundar frjálsar íþróttir hjá Sindra í Hornafirði, hópur í 2. flokki og meistaraflokki kvenna í knattspyrnu á Selfossi, skátar í Hveragerði og �?orlákshöfn, Stokkseyri og Eyrarbakka, ungt fólk úr ýmsum deildum ungmennafélaganna á Hellu, Hvolsvelli og Vík og á vegum fimleikafélagsins Ránar í Vestmannaeyjum.
Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, segir: �??�?jóðin hefur stutt við bakið á SÁÁ og tryggt að samtökin geti veiti vímuefna- og áfengissjúklingum og fjölskyldum þeirra eins góða þjónustu og kostur er. Ef ekki væri vegna stuðnings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ. �?jónusta SÁÁ við börn og aðra aðstandendur áfengis- og vímuefnasjúklinga er til dæmis öll kostuð tekjum af sölu álfsins og öðrum styrkjum. Við erum afskapleg þakklát og auðmjúk vegna þess stuðnings sem SÁÁ hefur notið hjá þjóðinni. Styðjum SÁÁ – Kaupum álfinn!�?�
Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.