Frátafir eru alltaf vondar
Fátt hefur meiri áhrif í Vestmannaeyjum en truflun á áætlun Herjólfs. Siglingar skipsins eru enda slagæð samfélagsins og mikilvægið því algert. Í dag er sú staða uppi að bilun í skipinu veldur frátöfum og þar með truflunum fyrir fjölmarga.
Hér fyrir neðan fara svör Vegagerðarinnar við spurningum Vestmannaeyjabæjar um það hvað veldur og hvernig brugðist verður við:
1. Í hverju er bilun fólgin?
Bilun var í akkeri í rafal framleiðir afl á vél 1.
Bilunin veldur því m.a. að ekki er hægt að nota hliðarskrúfur með því afli sem þarf amk ef eitthvað er að vindi sérstaklega í LAN vegna snúnings.
2. Hvenær uppgötvaðist að ráðast þyrfti í viðgerðir?
Bilunnarinnar varð vart í fyrradag, þriðjudag.
Kallað var á menn úr Eyjum um borð strax en ekki fannst hvað olli og því kom sérfræðingur frá Rvk. um borð í gær og bilanagreindi sbr. hér að ofan. Viðgerðin þolir ekki bið, sjá nánar neðar.
3. Var kannað hvort möguleiki væri að vinna að viðgerð utan áætlunar?
Viðgerðin þolir ekki bið þar sem hún hefur áhrif á afl á hliðarskrúfum.
Engin dagur góður í þetta þegar sigldar eru 5-6 ferðir á dag og nóttin ekki nægjanlegur tími en verður að sjálfsögðu notuð. Á morgun er föstudagur og svo helgina og því var það metið svo að minnsta röskun væri að fella niður tvær síðustu ferðir í dag fimmtudag og auðvitað vinna í nótt en sigla fulla áætlun á morgun. Menn eru þegar komnir af stað í þessa vinnu en eftir ferð nr. 3 í dag þarf að rífa �??ofan af�?? vélinni og ekki hægt að sigla þá. Möguleiki hefði verið að bíða fram á sjómannadag þar sem sigld er takmörkuð áætlun en það hefði mögulega/líklega kallað á frátafir vegna vinds á tímabilinu sem hefði þá haft enn verri afleiðingar.
�?að er alltaf bagalegt þegar svona kemur upp. Í gegnum tíðina hefur skipinu verið vel sinnt af hæfri áhöfn og bilanir því ekki algengar. Við verðum samt að vera meðvituð um að samgöngum við Vestmannaeyjar er núna haldið uppi af einni elstu farþegaferju í norður Evrópu og auðvitað aukast líkurnar á bilunum eftir því sem ferjan verður eldri. Herjóflur er 24 ára gamalt skip.

Nýjustu fréttir

Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur
Frábæru Orkumóti lokið – FH varð Orkumótsmeistari
ÍBV sækir botnlið FH heim
Breytt siglingaáætlun Baldurs næstu daga
Áfram ÍBV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.