Að gefnu tilefni og til þess að svara nokkrum spurningum.
Já, við í Flokki fólksins í Vestmannaeyjum höfum verið og erum að vinna í því að koma saman framboði hér í Eyjum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Hvort þetta tekst hjá okkur get ég ekki svarað alveg á þessari stundu, en við erum ekkert langt frá því.
Við vildum ekki auglýsa eftir fólki heldur frekar hafa samband við fólk, sem við teljum að sé frambærilegt og geti unnið eyjunum mikið gagn í hinum ýmsu málaflokkum.
Ástæðan fyrir því að við erum að skoða möguleikann á framboði eru einfaldlega áskoranir frá eyjamönnum sjálfum, eða a.m.k. nægilega mörgum þeirra sem vilja sjá stefnumál Flokks fólksins í bæjarstjórn Vestmannaeyja.
Við ætlum að gefa okkur svona ca. viku í viðbót í þetta og taka þá ákvörðun um það hvort við tökum slaginn eða ekki, en það er ákveðin ástæða fyrir því að ég þarf að klára þetta helst í síðasta lagi eftir viku.
Ástæðan fyrir því að tíminn er orðinn svolítið naumur er einfaldlega sú, að fimmtudaginn 31. mars mun ég taka sæti á Alþingi Íslendinga. Verð reyndar í Eyjum næstu helgi en mun svo vera á þingi fyrir Flokk fólksins vikuna 4.-9. apríl. Þetta er að sjálfsögðu spennandi og verður gaman að komast á þann vinnustað þar sem allar stærstu ákvarðanir á Íslandi eru teknar.
Að sjálfsögðu mun ég horfa til þess sem betur mætti fara hér í Eyjum, en einnig nokkuð augljóst að ég muni að öllum líkindum ræða kvótamálin, en það á þá bara eftir að koma í ljós en það er klárlega margt sem mætti betur fara og þó svo að við í Flokki fólksins séum í minnihluta þá tölum við skýrt um okkar málefni og um það efast enginn.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.