Hafa engar upplýsingar um bókhald Herjólfs
Ásmund­ur Friðriks­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks, seg­ir að Alþingi hafi eng­ar upp­lýs­ing­ar um rekst­ur Herjólfs sem sigl­ir til Vest­manna­eyja. �?rátt fyr­ir það fái Eim­skip 718 millj­óna króna rík­is­styrk á ári til þess að sinna sigl­ing­un­um.
Ásmund­ur seg­ist hafa leitað til Vega­gerðar­inn­ar og Eim­skips vegna máls­ins. Frá Vega­gerðinni fékk hann þær upp­lýs­ing­ar að töl­urn­ar lægju ekki fyr­ir og hjá Eim­skip fékk hann þau svör að um­rædd­ar töl­ur væru viðskipta­leynd­ar­mál, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.
�??Vega­gerðin hafði í raun eng­ar upp­lýs­ing­ar um rekst­ur ferj­unn­ar frá því rekst­ur­inn var boðinn út árið 2011. �?að sem hef­ur gerst síðan er að fólks­flutn­ing­ar hafa auk­ist úr 100 þúsund í 300 þúsund á ári og því fylgja mikl­ar tekj­ur,�?? seg­ir Ásmund­ur en rík­is­styrk­ur­inn hef­ur hækkað í takt við verðlagsþróun. �??Mér finnst und­ar­legt að bók­hald af rekstri sem er niður­greidd­ur af rík­inu sé ekki aðgengi­legt fyr­ir þá sem taka ákvörðun um hve miklu fé sé veitt til rekst­urs­ins,�?? seg­ir Ásmund­ur og bæt­ir því við að til sam­an­b­urðar sé styrk­ur til flugrekst­urs um 200 millj­ón­ir króna á ári á Íslandi.
Mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
viðburðir
26. apríl 2026
11:00
Stóri plokkdagurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.