�?egar Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, mætir til leiks með ÍBV gegn Haukum á laugardag þarf hann ekki bara að glíma við hina sterku vörn Íslandsmeistaranna í fyrstu umferð Olís-deildarinnar. Í baki Kára er nefnilega góðkynja æxli sem hann hefur síðustu mánuði reynt að vinna bug á, og er Kári kominn á fjórðu viku af sex í geislameðferð.
mbl.is greindi frá.
�?etta er sama æxli og hélt Kára frá keppni um tíma árið 2014, en það var árið 2012 sem hann greindist fyrst með æxli í baki, sem var fjarlægt.
�??Eftir að hafa fengið æxli aftur 2014 voru úrræðin þau að fylgjast með þessu, því vonin var sú að þetta myndi hætta á einhverjum tímapunkti að vaxa og leysast upp inni í líkamanum. En þetta var svo búið að vera að stækka aðeins í hverri skoðun, og farið að ýta á nærliggjandi líffæri með tilheyrandi óþægindum,�?? sagði Kári um aðdraganda þess að ákveðið var að hann færi í geislameðferð. Áður hafði hann reynt lyfjameðferð sem hófst áður en síðustu leiktíð í Olís-deildinni lauk:
�??�?g hætti í henni í júní eftir að hún hafði engin áhrif. �?á var næst í stöðunni að fara í geislameðferð sem ég er nú hálfnaður með. �?að verður einhver árangur af þessu, tvímælalaust, en hversu góður verður bara að koma í ljós með tímanum. �?g verð með geislana í mér, geislavirkur, í einhverja tvo mánuði eftir meðferðina. �?g verð eins og einn af The Avengers,�?? sagði Kári og hló, laufléttur í bragði að vanda. Hann segir það ekki hafa verið neitt áfall að þurfa að fara í geislameðferð.