Kári í geislameðferð
�?egar Kári Kristján Kristjáns­son, landsliðsmaður í hand­bolta, mæt­ir til leiks með ÍBV gegn Hauk­um á laug­ar­dag þarf hann ekki bara að glíma við hina sterku vörn Íslands­meist­ar­anna í fyrstu um­ferð Olís-deild­ar­inn­ar. Í baki Kára er nefni­lega góðkynja æxli sem hann hef­ur síðustu mánuði reynt að vinna bug á, og er Kári kom­inn á fjórðu viku af sex í geislameðferð. mbl.is greindi frá.
�?etta er sama æxli og hélt Kára frá keppni um tíma árið 2014, en það var árið 2012 sem hann greind­ist fyrst með æxli í baki, sem var fjar­lægt.
�??Eft­ir að hafa fengið æxli aft­ur 2014 voru úrræðin þau að fylgj­ast með þessu, því von­in var sú að þetta myndi hætta á ein­hverj­um tíma­punkti að vaxa og leys­ast upp inni í lík­am­an­um. En þetta var svo búið að vera að stækka aðeins í hverri skoðun, og farið að ýta á nær­liggj­andi líf­færi með til­heyr­andi óþæg­ind­um,�?? sagði Kári um aðdrag­anda þess að ákveðið var að hann færi í geislameðferð. Áður hafði hann reynt lyfjameðferð sem hófst áður en síðustu leiktíð í Olís-deild­inni lauk:
�??�?g hætti í henni í júní eft­ir að hún hafði eng­in áhrif. �?á var næst í stöðunni að fara í geislameðferð sem ég er nú hálfnaður með. �?að verður ein­hver ár­ang­ur af þessu, tví­mæla­laust, en hversu góður verður bara að koma í ljós með tím­an­um. �?g verð með geisl­ana í mér, geisla­virk­ur, í ein­hverja tvo mánuði eft­ir meðferðina. �?g verð eins og einn af The Avengers,�?? sagði Kári og hló, lauflétt­ur í bragði að vanda. Hann seg­ir það ekki hafa verið neitt áfall að þurfa að fara í geislameðferð.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.