Stórtónleikar undirbúnir

Á föstudaginn næstkomandi verða haldnir sannkallaðir stórtónleikar í Íþróttamiðstöðinni. En tónleikarnir eru liður í dagskrá Goslokahátíðar sem og 100 ára afmælis Vestmannaeyjakaupstaðar.

Fram koma á tónleikunum Björgvin Halldórsson, Ragnhildur Gísladóttir, Júníus Meyvant, Sverrir Bergman, Halldór Gunnar Pálsson, Silja Elsabet Brynjarsdóttir, strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Karlakór Vestmannaeyja. Úrvals hljóðfæraleikarar undir stjórn Jóns Ólafssonar. Fjölbreyttur lagalisti þar sem Goslokalagið verður m.a. frumflutt.

Áhugi á stórtónleikunum í boði Vestmannaeyjabæjar á föstudagskvöldið hefur farið fram úr björtustu vonum. Sérstaklega á tónleikana kl. 21.00 og er svo komið að allir miðar sem farnir voru í dreifingu eru búnir þrátt fyrir að bætt hafi verið við miðum. 

Vegna ásóknar hefur afmælisnefndin ákveðið að setja alla miðana á seinni tónleikana í dreifingu. Hægt verður að nálgast miða í Íþróttamiðstöðinni frá kl. 17.00 í dag, miðvikudag. Engir miðar verða því í boði við dyrnar á seinni tónleikana á tónleikadegi eins og áður var búið að tilkynna.

Meira er eftir af miðum á fyrri tónleikana kl. 18.00 , en vakin er athygli á að um er að ræða sömu dagskrá. Það ætti því ekki að skipta máli á hvora tónleikana er farið. Stemningin verður frábær á báðum tónleikunum. Miðar á fyrri tónleikana fást afhentir í Íþróttamiðstöðinni, Eldheimum og Safnahúsi. Er um að gera að tryggja sér miða sem fyrst. Vestmannaeyjabær býður á tónleikana –  enginn aðgangseyrir.

Ljósmyndari Eyjar.net leit við í Íþróttamiðstöðinni í gær þegar tæknimenn voru að koma upp tæknibúnaði, sviði o.fl.

Fleiri fréttir af Goslokahátíðinni og 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar má lesa hér.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.