Tolli sýnir í flugstöðinni

Á morgun, fimmtudag verður opnuð sýning á nýjum olíumálverkum eftir Tolla á Vestmannaeyjaflugvelli. Sýningin er samvinnuverkefni Isavia, rekstraraðila flugvallarins, og Tolla. 

Sýningin hefur ferðast um landið síðan fyrsta sýningin var opnuð í flugstöðinni á Egilsstöðum í september í fyrra. Auk Egilsstaða og nú Vestmannaeyja hefur Tolli boðið upp á samskonar sýningar í flugstöðvunum á Akureyri og Ísafirði. Sýningin mun standa fram yfir verslunarmannahelgi. Boðið verður upp á léttar veitingar á morgun, fimmtudag frá kl. 16-18:30.

Tímasetningin ekki tilviljun

Tímasetning sýningar Tolla í flugstöðinni í Vestmannaeyjum er ekki tilviljun. Goslokahátíð og hátíðarhöld vegna 100 ára afmælis Vestmannaeyjabæjar hefjast þennan dag, 4. júlí. Sýning Tolla er hluti af þeim hátíðarhöldum.

Sýningin í flugstöðinni í Vestmannaeyjum er sú síðasta í röðinni hjá Tolla að fara hringinn í kringum landið. Í framhaldinu er stefnam tekin á því  að því að nýta rými flugstöðva á Íslandi til að styðja við ungt listafólk á hverjum stað og gera því mögulegt að koma verkum sínum á framfæri þar.

Landsbyggðin togar sífellt í hann

Listamaðurinn Tolli er ekki þekktur fyrir að fara troðnar slóðir þegar kemur að sköpuninni, framsetningu á listinn eða vali á sýningarrými. Síðustu misseri hefur málarinn sótt aftur í ræturnar og ferðast um landið en hann hefur oft talað um það að árin sem farandverkamaður hafi mótað hann mikið á yngri árum. Það kemur fram í listinni um leið og landsbyggðin togar sífellt í hann. Tolli hefur sýnt víða, í yfirgefnum verksmiðjum, tónlistarhúsum og í verslunarmiðstöðvum. „Mér finnst áríðandi að fara með listina á vettvang. Hafa hana ekki fasta í sínu verndaða umhverfi sýningarsalanna í borginni. Heldur vil ég fara með hana til fólksins.“ segir Tolli og bætir við:

„Ég ryð brautina og vinn með Isavia í því að gera flugstöðvarnar sýningavænar og nota mína list til að venja farþega og ferðalanga við hugmyndina að búið að sé að setja upp sýningarrými í þessum fallegu byggingum. Svo koma flottir ungir listamenn sem eru að springa úr sköpunarkrafti og fylla þessi rými af enn meiri gleði,“

 

Fleiri fréttir af Goslokahátíðinni og 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar má lesa hér.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.