Eyjakonan Helga Tryggvadóttir í fimmta sæti hjá Vinstri grænum
Helga Tryggvadóttir náms- og starfsráðgjafi situr í fimmta sæti lista Vinstri grænna í suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar. Hún hefur mikinn áhuga á velferð allra í samfélaginu og vill leggja sitt af mörkum. Helga hóf störf í Framvegis miðstöð símenntunar í síðasta mánuði sem náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri. Einnig er hún í lítilli stöðu sem kennari við námsbraut í náms- og starfsráðgjöf í Háskóla Íslands.
Hvað var til þess að þú ákvaðst að gefa kost á þér?
-�?g hef alltaf verið pólitísk, haft skoðanir á samfélaginu og viðrað þær af og til í gegnum tíðina, án þess þó að taka þátt í skipulögðu stjórnmálastarfi. �?egar leitað var til mín með að taka sæti á listanum sagði ég strax já, held að það sé kominn tími til að ég leggi baráttunni fyrir betra og réttlátara samfélagi lið á þessum vettvangi.
Hvaða málefni brenna helst á þér og hvað er það sem þú mundir vilja koma í gegn ef þú ferð á þing?
– �?g hef mikinn áhuga á velferð allra í samfélaginu og snertir það líklega alla fleti stjórnmálanna. Velferðar-, heilbrigðis-, mennta-, byggða-, samgöngu-, umhverfis og atvinnumál svo eitthvað sé nefnt, allt blandast þetta saman og snertir gæði lífsins hjá okkur öllum.
�?að sem mér finnst mikilægt að skipting gæða, þar með talið auðs, verði réttlátari. Hvað segir að kennari sé ekki jafn mikilvægur og bankamaður? Eða fiskvinnslufólk síður merkilegt en lögfræðingar eða læknar? Í mínum huga erum við öll jöfn og þó svo það sé kannski ekki alltaf augljóst þá erum við öll að leggja mikið til samfélagsins. Eða þannig finnst mér að raunverueikinn eigi að vera. Raunin er hins vegar sú að þetta hefur heldur betur riðlast síðustu árin þar sem okkar minnstu bræður og systur lepja dauðann úr skel á meðan aðrir lifa í lúxus. Svo sem ekkert að því að fólk lifi í vellystingum, svo lengi sem næsti maður á skammlaust til hnífs og skeiðar. �?g hef verið svolítið upptekin af því að manneskjan geti lifað með reisn sama í hvaða stöðu hún er. Niðurstaðan er því líklega sú að ef ég kæmst á þing myndi ég berjast fyrir réttlátara samfélagi á öllum vígstöðvum.
Í tilefni að nýju kvótaári, hver telur þú framtíð kvótakerfisins vera?
– �?skastaðan er sú að öll þjóðin njóti góðs af auðlindinni, að arðurinn safnist ekki á hendur fárra. Mér finnst ekkert réttlæti í því að fiskurinn í sjónum verði um ókomna tíð eign annarra en þjóðarinnar allrar. �?eir sem sækja fiskinn og fjárfesta eiga svo sannarlega skilið laun fyrir sína vinnu og áhættu, en eins og málin hafa þróast þá tel ég ótækt hvernig kökunni er skipt. �?ær leiðir sem VG hefur lagt til fela m.a. í sér fyrningu aflaheimilda á lögnum tíma, sanngjarnari ráðstöfun þeirra auk fleiri ráðstafana. Mér hugnast þessi stefna vel þar sem markmiðin eru þau sem ég tala um hér að ofan. Aflamarkskerfið virðist aftur á móti þjóna tilgangi sínum vel og vona ég að svo verði áfram. �?g vona því að framtíð kvótakerfisins verði í takt við stefnu VG, en hvort það verður á eftir að koma í ljós.
Að lokum vildi Helga hvetja fólk til að kynna sér stefnu VG vel og vandlega. �??�?ar er að finna skynsamar og framkvæmanlegar leiðir að réttlátu samfélagi. Svo er náttúulega aðal málið að fólk nýti sinn lýðræðislega rétt og mæti á kjörstað, sama hvar það stendur í pólitíkinni�?? sagði Helga að lokum.

Nýjustu fréttir

Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar
Rauðáta gæti orðið ný atvinnugrein
Lögreglan minnir á mikilvægi umferðaröryggis á Orkumótinu
Fiskibátur vélarvana við Vestmannaeyjar
Orkumótið hefst á morgun
Asbeströr í óreiðu austur á Hrauni
Úti er ævintýri
Áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og kerfils

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.