Við leyfum okkur að þjófstarta Safnahelginni með því að sýna úr ótrúlegu myndasafni Gísla J. Johnsen sem nýverið var fært Safnahúsi að gjöf. Ljósmyndirnar verða sýnda á vikulegum Ljósmyndadegi á fimmtudaginn 3. nóv. kl. 13:30-15:30. Um kvöldið kemur Ármann Reynisson í heimsókn og kynnir nýjustu Vinjettuna sína, þá sextándu í röðinni. Ármann fær einvalda lið til að lesa úr bókinni og hefst dagskráin á fimmtudeginum 3. nóv. kl. 20:00.
Á föstudaginn 4. nóv. kl. 18:00 verður dagskráin formleg sett í Stafkirkjunni. Jazz/funk tríóið Eldar flytja tónlist. Kl: 20:30 á föstudagskvöldinu les Árni �?órarinsson úr nýrri bók sinni – Arnór og Helga leika Peter, Paul & Mary í ELDHEIMUM.
Á laugardeginum 5. nóv. kl. 13:00 koma í heimsókn í Safnahúsið skáldmennin Stefán Máni, Orri Harðarson og Bjartmar Guðlaugsson sem kynna og lesa úr nýrri bók sinni.
Í Sæheimum opnar á sama tíma sýningin �??Börn og pysjur�??. Ljósmyndir af börnum sem komið hafa í Pysjueftirlitið síðustu árin. Kl. 15:00 á laugardeginum eru svo hinir árlegu tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Bethel. Á laugardagskvöldið 5. nóv. kl. 21:00 mun Bjartmar troða upp í Alþýðuhúsinu með nýja og gamla tónlist auk þess sem hann mun spjalla um bókina sína.,
Sunnudaginn 6. nóv. kl. 12-13. Saga og súpa í Sagnheimum. Illugi Jökulsson fjallar um vísindamanninn Charcot og síðustu sjóferð franska rannsóknarskipsins Pourquoi-pas? sem fórst við Álftanes á Mýrum árið 1936. Í slysinu fórust 39 manns en aðeins einn maður lifði af.
Í andyri Safnahúss verða verk eftir Hugleik Dagsson.