�?g held að ekki sé ofsagt þegar því er haldið fram að heilbrigðismál á Íslandi séu í megnasta ólestri um þessar mundir. Í tíð þeirrar ríkisstjórnar sem enn hangir hefur ástandið versnað og það svo um munar. Starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar býr við hörmulegar aðstæður og svo má áfram telja. Nú er reyndar svo komið að heilbrigðiskerfið er komið út á ystu nöf og á sama tíma blasir við að ríkisstjórnin hefur enga framtíðarsýn í heilbrigðismálum.
�?etta er kannski ekki alveg rétt hjá mér því æ oftar heyrist rætt um framtíðaráform ríkisstjórnarflokkanna sem felast í því að koma heilbrigðisþjónustunni í einkarekstur því slíkur rekstur muni allt böl bæta í þessum efnum. Stundum læðist reyndar að hjá mér sá ljóti grunur að ríkisstjórnin sé bæði ljóst og leynt að vinna skemmdarverk á hinu samfélagslega heilbrigðiskerfi til þess að koma einkarekstrinum að.
Verði þessi framtíðaráform að veruleika blasir það eitt við að þjónustunni hrakar gagnvart almenningi en hinir efnameiri fá sennilega betri þjónustu ef þeir geta borgað fyrir hana. �?arna er sem sé komið enn eitt dæmið um hvernig núverandi ríkisstjórn vill bæta kjör þeirra sem betur standa í samfélaginu á kostnað hinna sem minna hafa.
Gegn þessum áformum standa Vinstri- græn. Við teljum félagslegan rekstur heilbrigðisþjónustunnar grundvallaratriði. Einkarekstur í ágóðaskyni á ekki heima í velferðarþjónustunni. Arðgreiðslur úr heilbrigðisþjónustu eru óásættanlegar, grunnþjónusta og rekstur sjúkrahúsa er ekki gróðavegur.
Vinstri græn stefna einnig að því að öll heilbrigðisþjónusta á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum verði gjaldfrjáls og að dregið verði markvisst úr kostnaðarþátttöku sjúklinga á næsta kjörtímabili. Byrjað verði á að lækka kostnað vegna barna, öryrkja og aldraðra og þjónustu göngudeilda sjúkrahúsanna.
Kosningarnar hinn 29. okt. snúast meðal annars um það hvers konar heilbrigðisþjónustu við viljum hafa í landinu. Núverandi stjórnarflokkar vilja sníða heilbrigðiskerfið að þörfum þeirra sem næg efni hafa. Vinstri- græn vilja félagslegt heilbrigðiskerfi sem allir geta notað á tillits til efnahags og þjóðfélagsstöðu.
Málin eru ekki flóknari.
Ragnar �?skarsson