Hin árlega skemmtun Félags kaupsýslumanna og VR verður í Höllinni laugardagskvöldið 5.nóvember
Hin árlega skemmtun Félags kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum og VR verður í Höllinni laugardagskvöldið 5.nóvember næstkomandi.
Eins og alltaf áður er vandað til skemmtunarinnar og munu Eurobandið, með Friðrik �?mar og Regínu í broddi fylkingar sjá um dansleikinn og að sjálfsögðu að hita upp á kvöldinu sjálfu. Hinn eini sanni Haraldur Ari mun stýra veislunni og stjórna spurningakeppni á milli borða og síðan munu meðal annars þau Leó Snær og Sara Rennee skemmta gestum. Gaman verður að heyra í þeim saman, en þau hafa verið að slá í gegn í sitthvoru lagi hér í Eyjum undanfarið. �?á verður hið sívinsæla happdrætti á sínum stað.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir á skemmtunina og ballið og hvetjum við saumaklúbba, félagasamtök og fyrirtæki til að fjölmenna á þetta glæsilega kvöld og fagna með verslunarfólki í Vestmannaeyjum. Miðaverð verður kr. 9.800,- fyrir glæsilegan kvöldverð, skemmtun og dansleik.
Allar nánari upplýsingar veitir Gréta í Eyjavík í síma 893-1511 eða greta@eyjavik.is og hún tekur einnig við borðapöntunum.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.