Tap gegn Aftureldingu
ÍBV fékk topplið Aftureldingar í heimsókn í kvöld í Olís-deild karla. Leikurinn byrjaði brösulega hjá báðum liðum þar sem þau skiptust á að tapa boltanum. Hin öfluga skytta Aftureldingar, Birkir Benediktsson, braut ísinn með góðu marki á 2. mínútu leiksins og setti þar með tóninn fyrir því sem koma skyldi. Í stöðunni 2:2 sóttu gestirnir í sig veðrið og náðu yfirhöndinni í leiknum og fyrr en varði var staðan orðin 2:6. Eyjamenn tóku þá leikhlé sem virtist skila sér því eftir það var meira jafnræði með liðunum en áður. �?að var síðan í lok fyrri hálfleiks sem ÍBV tókst að jafna metin í fyrsta skiptið frá því í stöðunni 2:2. Viðsnúningurinn hélt áfram og voru Eyjamenn einu marki yfir þegar flautað var til hálfleiks, staðan 14:13.
Í seinni hálfleik tóku gestirnir frá Mosfellsbæ strax frumkvæðið og leiddu leikinn allt til enda þó forystan hafi alltaf verið naum. Mikil spenna færðist í leikinn á lokamínútunni en þá minnkaði Sigurbergur muninn niður í eitt mark og í kjölfarið tók Einar Andri Einarsson þjálfari Aftureldingar leikhlé. Ekki tókst gestunum þó að halda boltanum nægilega vel og munaði minnstu að hinn ungi og efnilegi Elliði Viðarsson hefði náð að jafna leikinn á lokasekúndu leiksins en honum brást bogalistinn og lét verja frá sér. Lokastaða 26:27, virkileg svekkjandi niðurstaða fyrir ÍBV í þessum toppslag.
Agnar Smári Jónsson meiddist snemma leiks og kom ekki meira við sögu eftir það og er ljóst að það munar um hann í sóknarleik liðsins. Ljósi punktur leiksins var sá að margir ungir leikmenn fengu að spreyta sig og stóðu sig með prýði, bæði í vörn og sókn.
Eins og svo oft áður bar Theodór Sigurbjörnsson leik ÍBV uppi en hann skoraði 11 mörk. Með fjögur mörk hvor voru þeir Sigurbergur Sveinsson og Kári Kristján Kristjánsson. Kolbeinn Aron Arnarsson var með 12 mörk varin og Andri Ísak Sigfússon með tvö.

Nýjustu fréttir

Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.