Ragnar �?skarsson - Hvernig væri það?
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa í kosningabaráttunni nú haldið því hátt á lofti að nauðsynlegt sé að viðhalda stöðugleika á Íslandi til frambúðar. �?að geti þeir flokkar einir gert og því sé rökrétt að kjósa þá áfram til valda. Nú skulum við aðeins velta fyrir okkur nokkrum þáttum þess stöðugleika sem ríkisstjórnin býður upp á:
�?� Um ríkisstjórnina sjálfa er enginn stöðugleiki. Stjórnin er að hrökklast frá völdum áður en kjörtímabilið er búið vegna spillingarmála og stjórnarflokkarnir hamast nú hvor gegn öðrum og eru nánast ósammála um allt.
�?� Í heilbrigðismálum er enginn stöðugleiki. Heilbrigðiskerfið komið að fótum fram og stjórnarflokkarnir bjóða ekki upp á neinar lausnir til úrbóta, hvað þá til enduruppbyggingar. �?eir eru þó sammála um að einkavæða heilbrigðiskerfið svo einhverjir vildarvinir geti grætt á kostnað almennings í landinu.
�?� Í fiskveiðistjórnunarmálum er stöðugleikinn ekki meiri en svo að byggðirnar vítt um landið verða fyrri hverju áfallinu á fætur öðru vegna stefnu stjórnarflokkanna. Fjölmargir smábátasjómenn eru sem leiguliðar kvótakónga sem í síauknum mæli taka fé út úr sjávarútveginum og fjárfesta í alls kyns braski.
�?� Um stöðugleika í samgöngumálum nægir að nefna aðstæður okkar Vestmannaeyinga. Samgöngur á sjó milli lands og Eyja í algerum ólestri. Ekkert er ákveðið með umbætur á Landeyjahöfn, allt óljóst með nýtt skip og þar fram eftir götum. Í nútímanum þurfa svo farþegar frá �?orlákshöfn til Eyja að ganga um bílaþilfar til þess að komast um borð í Herjólf.
�?� Stöðugleiki ríkisstjórnarinnar í skattamálum felst í því að lækka skatta til hinna ríku á kostnað almennings.
�?� Eini stöðugleikinn sem ríkisstjórnin getur �??státað af�?? eru spillingarmálin. Ráðherrar beggja flokka hafa orðið uppvísir að því að tengjast skattaskjólsfélögum til þess að fela fjármuni fyrir íslenskum skattyfirvöldum og samfélagi.
Og áfram mætti halda. Sú spurning hlýtur því óhjákvæmilega að vakna hvort
við eigum að treysta þessu fólki til að fara áfram með völdin í landinu. �?g held að
það ættum við alls ekki að gera. Til þess eru vítin að varast þau.
Hvernig væri að treysta fólki eins og Katrínu Jakobsdóttur, Ara Trausta og
HelguTryggva og öðru góðu fólki til þess að breyta samfélaginu, skapa hér réttlátt samfélag. �?að getum við gert með því að kjósa Vinstri græn. X V
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.