Geta valið á milli ellefu framboða og hefur framboðið aldrei verið meira
Alþingiskosningar verða haldnar í dag og verður þetta í 22. skiptið sem þær eru haldnar frá Lýðveldisstofnun 1944. Að þessu sinni eru framboðin tólf talsins og munu öll þeirra bjóða fram í Suðurkjördæmi að undanskildum Húmanista okknum sem býður eingöngu fram í Reykjavíkurkjör- dæmi suður. Í Vestmannaeyjum eru 3166 manns á kjörskrá samkvæmt upplýsingum á bæjarskrifstofunni og voru þegar 207 manns búnir að kjósa utankjörstaðar fyrir hádegi í gær. �?ess má geta að hægt verður að greiða atkvæði utankjörstaðar fram á föstudag á skrifstofu sýslumanns á auglýstum opnunartíma. Kjörsókn í Vestmannaeyjum hefur verið í meðallagi undanfarnar Alþingiskosningar en árið 2013 var hún 81%, árið 2009 83,3% og svo 82,8% árið 2007. Samkvæmt kosningaspá Kjarnans sem gerð var á mánudag lítur allt út fyrir að af tíu þingmönnum úr Suðurkjördæmi verði þrír Vest- mannaeyingar, Páll Magnússon og Ásmundur Friðriksson frá Sjálf- stæðis okknum og Smári McCarthy frá Pírötum. Sjálfstæðis okkurinn stendur best að vígi samkvæmt spánni en þar kemur fram að 58% líkur séu á því að Vilhjálmur Árnason komist einnig inn á þing sem þriðji maður á lista, Píratar og Framsóknar okkurinn verða hins vegar að láta sér nægja tvo þingmenn og aðrir minna. Athygli vekur að afar ólíklegt er að Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, nái kjöri en líkur hennar samkvæmt spánni eru 13%. �?að sem brennur heitast á Eyjamönnum fyrir komandi kosningar er óneitanlega tvennt, staða heilbrigðismála, eins og reyndar hjá þjóðinni allri, og svo samgöngumál. �?að er því áhugavert að skoða hvað frambjóðendur nokkurra okka höfðu að segja við Eyjafréttir í aðdraganda kosninga. Lára Skæringsdóttir, fyrir Fram- sóknar okkinn, sagðist styðja sjálfstæðan rekstur Vestmannaeyinga á Herjól og auknum fjárframlögum til HSU um 250 milljónir svo hægt sé að halda úti fæðingarþjónustu og skurðstofuvakt. Ásmundur Friðriks- son, fyrir Sjálfstæðis okkinn, lagði áherslu á þrjú atriði: 1. Að rekstur Herjólfs verði á hendi heimamanna, 2. Sama fargjald í �?orlákshöfn og Landeyjahöfn og 3. Að farið verði í rannsóknir við Landeyjahöfn til að tryggja þar siglingar allt árið. Jóna Sólveig Elínardóttir frá Viðreisn vill auka frelsi sveitarfélaga til að ráðstafa fjármagni á sviði heilbrigðismála þannig að það myndi þjóna fólkinu á svæðunum sem best. Kvótaker ð sagði Smári McCarty fyrir Pírata vera ágætt, en skveiði- stjórnunarker ð ekki. Hann vill smám saman fara y r í uppboð á a a. Vésteinn Valgarðsson í Alþýðu- fylkingunni talaði fyrir aukinni félagsvæðingu og vaxtalausu fjármálaker . Helga Tryggvadóttir, frambjóðandi Vinstri grænna, sagði skiptingu gæða þurfa að vera réttlátari og að framtíð kvótaker sins fælist í fyrningu a aheimilda á löngum tíma. Páll Valur Björnsson í Bjartri framtíð talaði fyrir fjölbreytni á öllum sviðum, uppbyggingu ferðaþjónust- unnar, umhver svernd og e ingu heilsugæslu um allt land.

Nýjustu fréttir

Ekkert áframhaldandi flug
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.