Viðbragðsáætlun undirrituð 23. janúar þegar 44 ár eru frá gosi
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, Almannavarnanefnd Vestmannaeyja og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra upplýsa með ánægju að vinnu við Viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Vestmannaeyjum er nú lokið og hefur áætlunin verið undirrituð. Viðbragðsáætlunin er kom í dag inn á vef Almannavarna á slóðinni almannavarnir.is þegar 44 ár eru frá því að eldgos hófst á Heimaey.
Í áætluninni eru upplýsingar um sögu, staðhætti og innviði samfélagsins. Allir viðbragðsaðilar eru tilgreindir og fyrstu verkefni þeirra skilgreind auk stjórnskipulags og samskiptaleiða. Í áætluninni er einnig rýmingaráætlun byggðarinnar þar sem bænum er skipt í fimm svæði auk hafnarsvæðis. Eftir birtingu áætlunarinnar getur hún tekið breytingum í takt við þróun samfélagsins, nýjar upplýsingar og áhættumat eins og eðlilegt er.
Lögreglustjóri þakkar almannavarnanefnd, viðbragðsaðilum og samstarfsaðilum fyrir gott samstarf við gerð hennar. Vestmannaeyingar og aðrir áhugasamir geta nú skoðað áætlunina á netinu og kynnt sér viðbragð og skipulag samkvæmt henni.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri.

Nýjustu fréttir

Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.