�??Vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna vilja samtök sjómanna að eftirfarandi komi fram: Samninganefndir sjómanna, Sjómannasambands Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Sjómannafélags Íslands lýsa yfir vonbrigðum að slitnað hefur uppúr viðræðunum,�?? segir í fréttatilkynningu sem samninganefnd sjómanna hefur sent frá sér.
�??Samtökin vísa því til föðurhúsanna að það sé á ábyrgð sjómanna að sundur gekk. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi treystu sér ekki að koma til móts við sanngjarnar og réttlátar kröfur sjómanna til lausnar deilunni. Mikil og góð vinna hefur farið fram í samninganefndum sjómanna og útvegsmanna. Samskiptin hafa verið til fyrirmyndar og samninganefndirnar náð ágætlega saman. Góður árangur hefur náðst í nokkrum kröfum að mati samninganefndanna. �?tvegsbændur eru ekki tilbúnir að koma til móts við meginkröfur sjómanna og þess vegna er málið komið á það stig að viðræður eru strand, segir í fréttatilkynningunni sem Valmundur Valmundsson skrifar undir fyrir hönd samninganefnda sjómanna.