Fundur fræðsluráðs 27. febrúar
Haldinn í fundarsal Ráðhúss, 27. febrúar 2017 og hófst hann kl. 16.30.
Fundinn sátu: Hildur Sólveig Sigurðardóttir formaður, Silja Rós Guðjónsdóttir aðalmaður, Birna �?órsdóttir aðalmaður, Sonja Andrésdóttir aðalmaður, Gígja �?skarsdóttir 1. varamaður, Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Erna Jóhannesdóttir starfsmaður sviðs, Sigurlás �?orleifsson áheyrnarfulltrúi, Stefán Sigurjónsson áheyrnarfulltrúi, Emma Hinrika Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi, Helga Björk �?lafsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kolbrún Matthíasdóttir áheyrnarfulltrúi og Helga Sigrún �?órsdóttir áheyrnarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs
�?órey �?varsdóttir sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi leikskóla.
Dagskrá:
1.
201312020 – Pisa niðurstöður
Umræður um niðurstöður PISA 2015
Fræðslufulltrúi hefur endurtekið ítrekað beiðni Vestmannaeyjabæjar um réttar niðurstöður PISA könnunar frá 2015 fyrir nemendur GRV. Menntamálastofnun sendi niðurstöður í desember s.l. með röngum fjölda nemenda og óskað var eftir nánari skýringum. Enn hafa engar upplýsingar borist. Ráðið er ósátt við afgreiðslu Menntamálastofnunar og harmar að ekki fáist tímanlega réttar og áreiðanlegar niðurstöður sem nýst geta í skólastarfi. Könnunin tekur tíma frá hefðbundnu skólastarfi og umræða um almennar niðurstöður PISA á landsvísu valda oft sterkum viðbrögðum sem eru þá skólastarfi fremur til truflunar en til uppbyggingar skólastarfs og skólaþróunar ef slík vinnubrögð með niðurstöður einstakra sveitarfélaga eru viðhöfð.
2.
200702204 – Leikskólinn Sóli
Leikskólastjóri Sóla kynnir starfsemi leikskólans.
Helga Björk �?lafsdóttir fór yfir starfsemi leikskólans Sóla sem rekin er af Hjallastefnunni. Ráðið þakkar Helgu Björk greinargóða yfirferð.
3.
201104071 – Leikskólamál.
Kynning á stöðu biðlista.
�?ann 27. febrúar eru 7 börn, sem eru orðin 18 mánaða, á biðlista eftir leikskólaplássi.
4.
201604034 – Heimagreiðslur.
Heimagreiðslur til forráðamanna barna frá 9 mánaða aldri og þar til barn fær daggæsluúrræði eða boð um leikskólavist hefur verið í gangi frá 1. maí 2016. Í dag eru alls 21 barn sem nýtur heimagreiðslu frá Vestmannaeyjabæ. Mest hefur farið í 35 börn á mánuði sem njóta heimagreiðslu. Vestmannaeyjabær hefur greitt alls 7,2 milljónir í heimagreiðslur frá 1. maí 2016 og af því 772 þúsund frá áramótum. Mánaðarleg greiðsla til forráðamanna er 35.295 kr á barn.
5.
201602008 – Allir lesa. Landsleikur í lestri.
Erna Jóhannesdóttir fræðslufulltrúi kynnir niðurstöður Allir lesa 2017.
Landsleikurinn er liðakeppni þar sem vinnustaðir, heimili, skólabekkir, vinahópar og fleiri geta tekið þátt. Leikurinn gengur ekki út á að lesa sem flestar blaðsíður, heldur nota sem mestan tíma í lestur.
Fyrsti landsleikurinn fór fram í okt-nóv 2014 og þá lásu Vestmannaeyingar mest allra sveitarfélaga. Annar landsleikurinn fór fram í jan til feb 2016. �?á voru Vestmannaeyjar í 3. sæti. �?riðji landsleikurinn fór fram nú í janúar – febrúar 2017 og voru Vestmannaeyingar í 6. sæti. Af því má sjá að þátttaka Vestmannaeyinga hefur farið minnkandi. Mikilvægt er að við öll leggjumst á eitt til að auka lestur í samfélaginu okkar. Vert er að taka fram að allur lestur gildir hvort sem um er að ræða prentaðan texta, hljóðbækur eða rafbækur. Einnig eru allar tegundir bóka gjaldgengar í keppninni og öll tungumál. Hér er átt við bækur sem innihalda til dæmis skáldskap, fræði, skýrslur eða eitthvað allt annað. �?ví er skorað á Vestmannaeyinga, hvort sem eru bæjarbúar almennt, vinnustaðir og þá ekki síst allt skólasamfélagið frá þeim yngstu til þeirra elstu að taka virkan þátt í þessum skemmtilega landsleik að ári. Markviss kynning á átakinu þarf einnig að fara fram þegar þar að kemur og felur ráðið fræðsluskrifstofu að fylgja því eftir. Við þurfum að hafa í huga að lestur og meiri lestur skiptir öllu máli þegar horft er til árangurs og framfara í námi. �?að styður vel við Framtíðarsýn Vestmannaeyja þar sem megináherslur eru á læsi og stærðfræði.
6.
201702141 – Heimsókn Simfóníuhljómsveitar Íslands til Vestmannaeyja.
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika n.k. miðvikudagskvöld 1. mars kl. 19.30 í Íþróttamiðstöðinni, þar sem hljómsveitin mun m.a. flytja syrpu eftir Oddgeir Kristjánsson. �?essi heimsókn er endapunktur tónleikaferðarinnar, Landshorna á milli. Morguninn eftir mun Sinfóníuhljómsveitin flytja ævintýrið um músina Maxímús Músíkús á barnatónleikum fyrir grunn- og leikskólabörn en undirbúningur hefur verið í skólunum fyrir tónleikana þar sem börnin hafa verið að kynnast músinni knáu og læra lög tengd ævintýrinu. Ráðið fagnar þessu framtaki Sinfóníuhljómsveitarinnar sem færir Vestmannaeyingum tækifæri til að upplifa krúnudjásn tónlistarmenningar höfuðborgarinnar í heimabyggð. Ráðið hvetur eindregið Vestmannaeyinga til að fjölmenna á tónleikana en þeir eru öllum opnir og er aðgangur ókeypis.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.30

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.