Trausti Hjaltason: Breyting á leiguverði á leiguíbúðum í eigu Vestmannaeyjabæjar
Markmið að jafna rétt þeirra aðila sem eru á leigumarkaði en jafnframt að taka tillit til fjárhagslegra aðstæðna
Meðal mikilvægra verkefna fjölskylduráðs eru húsnæðismál. Í dag á og leigir Vestmannaeyjabær 58 íbúðir. Leigutakar eru ýmist fatlaðir, aldraðir eða fólk sem fær húsnæðisaðstoð vegna félagslegra aðstæðna. �?jónustuhópurinn er því fjölbreyttur og mikilvægt að honum sé boðin aðstoð í samræmi við þarfir hvers og eins.
Frá 2014 hefur fjölskylduráð unnið einhuga að samræmingu leiguverðs á íbúðum í eigu Vestmannaeyjabæjar enda með öllu óeðlilegt að mismuna leigutökum án þess að til grundvallar liggi aðstöðumunur svo sem vegna fjárhagslegrar stöðu. Um leið og leiða hefur verið leitað til að samræma leiguverð hefur einnig verið horft til þess að færa það nær markaðsverði og draga þar með úr aðstöðumun þeirra sem leigja á almennum markaði og hinna sem leigja af Vestmannaeyjabæ.
Vegna þessa hefur fjölskyldu- og tómstundarráð lagt á það áherslu að samhliða þessum breytingum verði tekinn upp sérstakur húsnæðisstuðningur og þannig jafnaður réttur þeirra aðila sem eru á leigumarkaði og hinna sem leigja á almennum markaði. �?ar með er einnig tekið tillit til fjárhagslegra aðstæðna og bótum beint til þeirra sem mesta hafa þörfina.
Húsaleigubætur hækkuðu um áramót og tekinn var upp sérstakur húsnæðisstuðningur
Fyrsta skrefið í þessari réttlætisaðgerð var að samþykkja nýjar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning og komu þær til framkvæmda nýverið. Um áramót hækkuðu húsnæðisbætur í takt við þróun verðlags. Á seinasta fundi sínum tók svo ráðið lokaskrefið í þessari aðgerð og samræmdi leiguverð allra íbúða og verður það 1.200,- kr. á fermetra frá og með 1. apríl 2017.
Í samræmi við leigusamninga verður þó ekki um hækkun að ræða hjá þeim sem eru í fastri leigu hjá Vestmannaeyjabæ fyrr en 12 mánuðum síðar eða 1. apríl 2018. Málið allt verður af sjálfsögðu kynnt leigutökum sérstaklega með bréfi sem inniheldur upplýsingar um breytingu á leigu auk þess sem ráðgjafi á vegum Vestmannaeyjabæjar býður leigutökum upp á viðtal til að fara yfir væntanlegar breytingar.
Ljóst er að húsaleiga á leiguhúsnæði á vegum Vestmannaeyjabæjar hefur í gegnum árin verið mun lægri en á almennum markaði og hefur það skapað mikla óánægju meðal þess hóps sem býr við lágar tekjur en hefur ekki komist í húsnæði hjá Vestmannaeyjabæ. �?etta bil hefur verið að aukast mikið á síðustu árum og í dag er leiguverð leigjanda hjá Vestmannaeyjabæ oft um 60% af markaðsverði óháð fjölskyldutekjum viðkomandi. Í allri sanngirni hljóta allir að geta séð að óeðlilegt er að sveitarfélag niðurgreiði leiguverð og skekki þannig leigumarkaðinn, og enn verra er þegar fólk með háar tekjur býr við niðurgreiddan húsnæðiskostnað en dæmi eru um að þeir sem leigja hjá Vestmannaeyjabæ hafi verið að greiða allt niður í 4,3% af ráðstafanafé í heildarhúsnæðiskostnað. Ekki er óeðlilegt að húsnæðiskostnaður sé milli 20 �?? 30% af ráðstafanafé. Til eru dæmi um mun hærri húsnæðiskostnað á almennum leigumarkaði.
Til glöggvunar er hér
nokkur dæmi um breytingu
á leiguverði:
a) Einstaklingur með eitt barn í tæplega 100 fm íbúð fer úr leigu upp á kr. 83.439,- í kr. 119.520,-. Viðkomandi aðili var áður með kr. 22.000,- í húsaleigubætur en þær hækka í 41.000 kr. Leiguverð fer þá úr kr. 61.439,- í kr. 78.520. Viðkomandi einstaklingur á rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi upp á kr. 28.520,- vegna lágrar tekna þannig að leigan færist niður í kr. 50.000,-. Húsnæðiskostnaður umrædds leigutaka miðað við ráðstafanafé lækkar úr 22,6% í 18,4%.
b) Hjón í tæplega 85 fm íbúð fara úr leigu upp á kr. 70.621,- í kr. 101.160,-. Viðkomandi aðilar voru áður með kr. 20.574,- í húsaleigubætur en þær hækka í kr. 41.000,-. Leiguverð fer þá úr kr. 50.047,- í kr. 60.160,-. Húsnæðiskostnaður umræddra aðila miðað við ráðstafanafé hækkar úr 8,3% í 10%.
c) Einstaklingur í tæplega 40 fm íbúð fer úr leigu upp á kr. 32.839,- í kr. 47.040,-. Viðkomandi aðili var áður með kr. 16.366,- í húsaleigubætur sem lækka í kr. 12.497,-. Leiguverð fer þá úr kr. 16.473,- í kr. 34.543,-. Húsnæðiskostnaður umrædds leigutaka miðað við ráðstafanafé hækkar úr 5% í 10,5%.
d) Hjón í rúmlega 70 fm íbúð fara úr leigu upp á kr. 59.274,- í kr. 85.560,-. Viðkomandi aðilar voru áður með kr. 22.000,- í húsaleigubætur en þær lækka í kr. 15.207,-. Leiguverð fer þá úr kr. 37.274,- í kr. 70.353,-. Húsnæðiskostnaður umrædds leigutaka miðað við ráðstafanafé hækkar úr 5,9% í 11,2%.
Eins og dæmin hér að ofan sýna þá er tilgangurinn með þessum breytingum að jafna kjör leigutaka og beina stuðningi fyrst og fremst þangað sem þörfin er mest. Í draumaheimi væri hægt að bjóða öllum upp á alla þjónustu. Í heimi takmarkaðra auðæfa er það hinsvegar ein af skyldum okkar kjörinna fulltrúa að beina stuðningi mest að þeim sem mesta hafa þörfina.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.