Kröftug barátta heldur áfram
Að gefnu tilefni vill undirrituð svara grein Ragnars �?skarssonar sem birtist í síðustu Eyjafréttum. �?ar segir: ,,Í mótmælunum bar mest á hetjulegri framgöngu margra forystumanna Sjálfstæðisflokksins í bænum og í máli sínu hlífðu þeir ekki ríkisstjórninni sem þá sat við völd.�?� Og ,,�?eir sem hæst töluðu í mótmælunum hafa einhverra hluta vegna hvorki haft hátt síðan né mótmælt framkomu stjórnvalda nú eins kröftuglega og sköruglega sem þá.�?� �?ar er Ragnar væntanlega að vitna í ræður undirritaðrar og bæjarstjórans, Elliða Vignissonar. �?g þakka Ragnari hólið en vil vingjarnlega benda honum á eftirfarandi atriði:
Fulltrúar bæjarins hafa ítrekað fundað með heilbrigðisyfirvöldum.
Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar hafa ítrekað fundað með starfsfólki heilbrigðisráðuneytis og nú síðast á þessu ári með nýjum heilbrigðisráðherra, �?ttari Proppé til að reyna að koma embættismönnum í skilning um að þær aðstæður sem við búum við hvað þessi málefni varðar séu með öllu óásættanlegar og sérstaklega í ljósi niðurstöðu faghóps sem skipaður var af þáverandi heilbrigðisráðherra sem komst að þeirri samróma niðurstöðu að halda ætti úti sólahringsvakt í skurðþjónustu í Vestmannaeyjum.
Bæjarstjórn hefur mótmælt ástandinu kröftuglega
Bæjarstjórn og bæjarráð Vestmannaeyja hafa barist hatrammlega gegn lokun skurðstofunnar og hafa ítrekað sent frá sér ályktanir um stöðu heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu og þær hörmulega aðstæður að ekki sé tiltækur svæfingalæknir né skurðlæknir á sólahringsvakt líkt og í tugi ára áður. �?etta höfum við gert óháð því hvernig ríkisstjórn hefur verið skipuð enda berjumst við fyrir hagsmunum Eyjamanna fyrst og fremst.
Vestmannaeyjabær bauðst til að reka heilbrigðisþjónustuna
Vestmannaeyjabær bauðst fyrir sameiningu Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum við HSU að taka yfir rekstur stofnunarinnar og tryggja hagræðingu og þannig rekstur skurðstofunnar. �?eirri viðleitni sveitarstjórnarinnar til að viðhalda ásættanlegu heilbrigðisþjónustustigi var því ver og miður hafnað af þáverandi heilbrigðisráðherra, Kristjáni �?ór Júlíussyni.
Opinber gagnrýni bæjarfulltrúa óháð stjórnarflokkum
Undirrituð hefur persónulega sent frá sér fjölda greina og fyrirspurnir á ýmsa fjölmiðla þar sem mótmælt hefur verið og gagnrýndar harðlega þær aðstæður sem okkur er boðið upp á og þar skiptir ekki og mun ekki skipta máli hvaða ríkisstjórn er við völd. Hagsmunir sveitarfélagsins og íbúa þess munu ávallt og eiga ávallt að vera bæjarfulltrúum, hverjir svo þeir eru hverju sinni, efst í huga en ekki flokkspólitískar taugar. Ekki rekur mig minni til þess að hafa heyrt Ragnar gagnrýna niðurskurð ríkistjórnar VG og Samfylkingarinnar en engin ríkisstjórn síðustu tíma hefur gengið harðar fram í niðurskurði í heilbrigðiskerfinu en sú ríkisstjórn.
�?ví er sú staðhæfing Ragnars að bæjarfulltrúar hafi hvorki haft hátt né mótmælt framkomu stjórnvalda með öllu kolröng. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur og mun halda áfram sínum hörðu mótmælum gegn þessu óviðunandi ástandi á hvaða vettvangi sem er. �?að kann að koma Ragnari á óvart en í dag er það frekar algengt að fólk sinni sveitarstjórnarmálum fyrst og fremst til að bæta hag bæjarbúa frekar en að berjast fyrir hagsmunum síns flokks. �?að á við bæði um meiri- og minnihluta núverandi bæjarstjórnar.
Ábyrgðin er ríkisvaldsins
Bæjarstjórn ber illu heilli ekki ábyrgð á né hefur valdsvið yfir heilbrigðismálum sveitarfélagsins. Heilbrigðisþjónusta er alfarið á ábyrgð ríkisvaldsins.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur hinsvegar boðið í rekstur bæði samgangna og heilbrigðismála sveitarfélagsins, sem eru vissulega þeir málaflokkar sem mest á hallar og eiga það sammerkt að vera á ábyrgð ríkisins, og þar með reynt að fara langt umfram sínar opinberar skyldur en ekki hlotið erindi sem erfiði. �?að er sárgrætilegt að þeir aðilar sem bera ábyrgð á þessum málaflokkum hafa að mörgu leyti ekki haft skilning á þeirri þjónustu sem er sveitarfélaginu nauðsynleg. Bæjarstjórn Vestmannaeyja mun hvergi hvika frá þeim kröfum að skurðstofa verði aftur starfrækt í Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjabær mun halda áfram að mótmæla því þegar hið opinbera skerðir þjónustu við sveitarfélagið sem því er nauðsynleg, líkt og það gerði nýlega þegar ISAVIA ohf. sagði upp 2 stöðugildum á Vestmannaeyjaflugvelli, og skerti þar með þjónustu við bæjarbúa og enn einu sinni skal opinberum störfum fækkað á landsbyggðinni. �?essu mótmælti Ragnar �?skarsson einnig í grein á eyjar.net þó hann hafi reyndar látið vera að taka það fram að hann átti sæti í stjórn ISAVIA ohf. þegar ákvörðun um þessa aðgerð var tekin.
Virðingarfyllst
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.