Samgöngufundur: Umræður og fyrirspurnir - myndskeið
Eins og fram kom á vef Eyjafrétta í gær mættu á fjórða hundrað manns á fund í Höllinni um samgöngumál milli lands og Eyja þar sem ályktun í sex liðum var m.a. samþykkt. Hér að neðan er að finna 30 mínútna samantekt frá SIGVA media, sem sá um að taka fundinn upp.
Fundur um samgöngumál milli lands og Vestmannaeyja sendir frá sér eftirfarandi ályktun:
Fundurinn gerir eftirfarandi lámarkskröfu til samgönguyfirvalda:
1. Að þegar siglt er til Landeyjahafnar skulu ávallt vera 6 ferðir á dag að lámarki �?? alla daga ársins.
2. Að þegar verði hafnar rannsóknir á Landeyjahöfn með það að markmiði að bæta innsiglingu hafnarinnar þannig að hægt verði að nýta höfnina sem heilsárshöfn.
3. Að fargjöld til �?olákshafnar verði þau sömu og til Landeyjahafnar.
4. Að núverandi ferja verði áfram nýtt til fraktflutninga á milli lands og Eyja eftir að ný ferja kemur. �?á verði núverandi ferja einnig nýtt sem varaskip fyrir nýja ferju.
5. Að ávallt verði ákveðinn fjöldi bílaplássa frátekin fyrir heimamenn fram að degi fyrir brottför.
6. Að rekstur ferjunnar verði í höndum heimamanna og hagnaður af rekstrinum verði nýttur til að lækka fargjöld, auka þjónustu og skili sér þannig beint til heimamanna.
Samþykkt einróma þann 10.05.2017 á fjölmennum fundi í Höllinni, Vestmannaeyjum

Samgöngufundur – Umræður og fyrirspurnir from SIGVA media on Vimeo.

Nýjustu fréttir

Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.