Bergur-Huginn - Magnús lætur af störfum framkvæmdastjóra
Um miðjan júní nk. mun Magnús Kristinsson láta af störfum framkvæmdastjóra útgerðarfélagsins Bergur-Huginn ehf. í Vestmannaeyjum. Frá sama tíma mun Arnar Richardsson taka við starfi rekstrarstjóra félagsins. Bergur-Huginn er dótturfélag Síldarvinnslunnar hf. �?etta kemur fram í fréttatilkynningu..
,,�?tgerðarfélagið Bergur-Huginn (BH) var stofnað í árslok 1972 í þeim tilgangi að láta smíða togara í Japan og gera hann síðan út. Togarinn kom til landsins árið 1973 og bar nafnið Vestmannaey. BH gerði Japanstogarann út til ársins 2005 ásamt fleiri skipum. Nú gerir félagið út tvo 29 metra togara, svonefnda þriggja mílna báta, og bera þeir nöfnin Vestmannaey og Bergey.
Magnús Kristinsson hefur starfað hjá BH í um 45 ár en starfi framkvæmdastjóra hefur hann gegnt frá árinu 1978 eða í tæp 40 ár. Hann hefur stýrt félaginu með afar farsælum hætti og skilar af sér stöndugu og traustu fyrirtæki. Hinn nýráðni rekstrarstjóri, Arnar Richardsson, er rekstrarfræðingur að mennt og hefur haldgóða reynslu af störfum í sjávarútvegi. Arnar starfaði meðal annars hjá BH á árunum 2006-2009 og einnig á árunum 2010-2015 en frá þeim tíma hefur hann verið framkvæmdastjóri Hafnareyrar ehf. sem er dótturfélag Vinnslustöðvarinnar.
Síldarvinnslan vill á þessum tímamótum þakka Magnúsi Kristinssyni fyrir einstaklega góð störf í þágu útgerðarfélagsins og bjóða Arnar Richardsson velkominn til starfa. Mun Magnús taka sæti í stjórn félagsins á næsta aðalfundi þess þannig að reynsla hans og þekking mun nýtast því áfram,�?? segir einnig í fréttatilkynningunni.
Á myndinni er Magnús með Birgi Sverrissyni, skipstjóra á Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.