ÍBV 4:0 Grindavík
Leik Grindavíkur og ÍBV í Pepsi-deild kvenna var að ljúka rétt í þessu. Leikurinn byrjaði heldur betur fjöruglega því að strax á annari mínútu leiksins dróg til tíðinda. Chloe Lacasse fann Katie Kraeutner eina í gegn sem að renndi boltanum í stöngina og inn 1-0 fyrir gestina. Fotbolti.net greinir frá.

Á fertugustu mínútu fengu heimamenn dauðafæri þegar að skot Carolina hafnaði í slánni og niður, Ísabel náði frákastinu en henni brást bogalistin þegar hún setti boltann framhjá fyrir opnu marki.

Aðeins mínútu síðar refsuðu gestirnir og þar var að verki Kristín Erna Sigurlásdóttir eftir að skot hennar var varið og hún náði sjálf frákastinu 2-0 var staðan fyrir gestina í hálfleik.

�?egar aðeins tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var lét Kristín Erna aftur til sín taka þegar hún kláraði fyrirgjöf Ingibjörgu Lúciu Ragnarsdóttur vel af stuttu færi.

�?að var síðan Chloe Lacasse sem að gerði endanlega út um leikinn þegar hún skoraði fjórða mark gestana með frábæru einstaklingsframtaki. 4-0 urðu lokatölur.

Nýjustu fréttir

Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.