Pepsi-deild karla Víkingur �?. 0:3 ÍBV
0-1 Alvaro Montejo (’21)
0-2 Arnór Gauti Ragnarsson (’78)
0-3 Arnór Gauti Ragnarsson (’92)
Rautt spjald: Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Víkingur �?. (’54)
Fyrsta leik dagsins í Pepsi-deild karla er lokið. Víkingur fékk ÍBV í heimsókn til �?lafsvíkur í fyrsta leik 4. umferðar deildarinnar. Fotbolti.net greinir frá.
Bæði lið höfðu unnið einn leik fyrir leikinn í dag, en gestirnir frá Vestmannaeyjum voru með stigi meira.
Fyrsta mark leiksins kom eftir 21. mínútu þegar hinn spænski Alvaro Montejo skoraði eftir magnaðan undirbúning frá Felixi Erni Friðrikssyni. Hann lék á fjóra leikmenn og gaf boltann á Alvaro.
Eyjamenn fóru með 1-0 forystu í hálfleik, en eftir tíu mínútur í seinni hálfleiknum dró til tíðinda þegar Guðmundur Steinn Hafsteinsson var rekinn af velli. Hann fékk beint rautt.
ÍBV nýtti sér liðsmuninn með tveimur mörkum frá varamanninum Arnóri Gauta Ragnarssyni, en lokatölur urðu 3-0 fyrir gestina.
ÍBV hoppar upp í fjórða sæti deildarinnar, en �?lsarar eru við botninn.

Nýjustu fréttir

Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.