Færst hefur í aukana síðustu vikur að stór fasteignafélög kaupi upp fasteignir í Vestmannaeyjum og veðji þannir á hækkandi fasteignaverð samfara bættum samgöngum til og frá Eyjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir fjárfesta hafa mikla trú á áhrifum nýrrar Landeyjahafnar.
Visir.is greinir frá.
�??Við á landsbyggðinni vitum sem er að í hvert skipti sem samgöngur lagast þá hækkar fasteignaverð,�?? segir Elliði.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
�??Við sjáum það hér í Eyjum mjög glöggt í tengslum við gerð Landeyjahafnar. �?g get staðfest að hafa orðið var við að stór félög séu að kaupa upp fasteignir í Eyjum. �?eir hafa þá líklega meiri trú á því að verðið muni hækka en heimamenn.�??
Guðjón Hjörleifsson, fasteignasali í Vestmannaeyjum, hefur sömu sögu að segja og Elliði og staðfestir að á annan tug fasteigna hafi á stuttum tíma farið til fasteignafélaga. Stór fyrirtæki fái lánað hjá Íbúðalánasjóði á sömu vöxtum og almenningur til langs tíma. Eignamyndun félaganna sé hraðari á stöðum eins og Vestmannaeyjum en í Reykjavík til að mynda.
�??Jú, ég hef verið að selja íbúðir til fasteignafélaga í Eyjum sem ætla sér að leigja út eignirnar í einhvern tíma þar til fýsilegt verður að selja. �?að er mjög áhugavert að sjá þennan viðsnúning því þetta er eitthvað sem við höfum ekki séð mikið af hér í Eyjum,�?? segir Guðjón. �??Menn fá hér eignir á góðu verði þar sem atvinnulíf er með ágætum og svo veðja menn líklega á að verðið hækki með bættum samgöngum.�??
Elliði segir það mikilvægt að heimamenn sjái líka tækifærið í auknum samgöngum við Landeyjahöfn og haldi ekki að sér höndum. �??Fjárfestar kaupa núna bæði íbúðir og hús sem þeir ætla að leigja og selja áfram.
�?ví gæti verið sniðugt að fjárfesta nú áður en verð hækkar í Eyjum. það hefur margsýnt sig að verð fasteigna fer upp um leið og samgöngur batna,�?? segir bæjarstjórinn.