Kanadískur fjöllistahópur skemmtir í Eldheimum í kvöld kl.20:OO og samanstendur hann af listakonunni Jasa Baka sem vinnur þvert á listgreinar, sellóleikarinn og fjöllistakonunni Tyr Jam og tónlistarmanninum Justin Guzzwell, hljóðlistamanninum Eric Shaw og Frances Adair Mckenzie sem sérhæfir sig í nýjum miðlum. �?á eru hér kvikmyndagerðarkonan Catherine Legault sem vinur heimildarmynd um verkefnið og móðir systranna Jösu og Tyr, listakonan Debora Alanna.
�?au lofa góðri skemmtun í kvöld og hvetja fólk til að mæta og sjá fjölbreytta sýningu.
Samstarf hópsins hófst í kringum upptökur frá langömmu þeirra Jösu og Tyr og ömmu Deboru, Ingibjörgu Guðmundsdóttur sem fluttist frá Vestmannaeyjum til Kanada árið 1924. Hún náði háum aldri og lést árið 1994, þá 103 ára. Á áttunda og níunda áratug síðustu aldar söng hún vísur og þjóðlög, eftir minni, inn á kassettur sem hún sendi til dóttur sinnar Jónu sem bjó í Montreal og átti hún að spila þær fyrir barnabörnin.
Samstarfsverkefni þeirra, New spring in the Dead of winter, er því í raun samstarf fjögurra kynslóða kvenna sem hófst á Íslandi árið 1924. Verkefnið tengir listamenn úr ýmsum áttum sem ekki eru tengdir því fjölskylduböndum sem saman skapa vel ígrundað og töfrandi form sagnamennsku. Sjónheimur Zuzu Knew (Jasa Baka) og tónlist Syngja sem þau Tyr og Justin skipa eru innblásin af persónugerðri náttúru og dulúðlegum erkitýpum.
Tónlistin og hið sjónræna flýtur á milli þess sem er hér og handanheima. Í tónlistinni mætast nútímaheimur raftónlistarinnar, klassískur sellóleikur, hljóðgervlar og raddir. Lifandi myndmáli er varpað er á senuna á meðan á tónleikum stendur og leika búningar Zuzu þar einnig stórt hlutverk. Í heiminum sem þau skapa er ekki að finna skýra línu sem skilur að hvar raunveruleikinn endar og fantasían hefst.
Hópurinn kemur fram á þremur stöðum á landinu Vestmannaeyjum, Ísafirði og Reykjavík