Áminning um íbúafundinn annað kvöld
Vestmannaeyjabær boðar til íbúafundar n.k. miðvikudag 31. maí kl. 19:30 í sal Akóges Hilmisgötu 15 þar sem kynnt verður tillaga að nýju aðalskipulagi á vinnslustigi.
Meðal áhugaverðra viðgangsefna í nýju aðalskipulagi eru ný höfn við Eiðið og í Skansfjöru, þétting byggðar við miðbæ, athafnasvæði við flugvöllinn og rammaskipulag fyrir ferðaþjónustu.
Tillagan er sett fram með uppdráttum, umhverfisskýrslu og greinargerð og er nú þegar aðgengileg hjá umhverfis-og framkvæmdasviði Skildingavegi 5 og á heimasíðu bæjarins http://vestmannaeyjar.is/is/page/skipulagsmal
Vakin er athygli á því að um er að ræða kynningu á vinnslustigi í samræmi við 2. mgr. 30 gr. Skipulagslaga nr.123/2010 og er öllum er frjálst að senda inn ábendingar um innihald tillögunnar meðan hún er enn á vinnslustigi. �?skað er eftir því að ábendingar berist í síðasta lagi 21 júní á netfang bæjarins 900skipulag@gmail.com eða til umhverfis-og framkvæmdasviðis Skildingavegi 5.
Skipulagsfulltrúi

Nýjustu fréttir

Framboðslisti kjósenda í Eyjum
ÍBV mætir Þrótti í bikarnum
Hörku skákmót hjá TV á skírdag
Tjaldurinn meðal vorboða í Eyjum
Bæta á aðgengi og fjölga bílastæðum við Kirkjugerði
ÍBV semur við serbneskan framherja
Metár og hagnaður langt yfir áætlun
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.