Alls tók 151 þátt í sjöunda Vestmannaeyjahlaupinu á laugardaginn og eru aðstandendur mjög ánægðir með hvernig til tókst þrátt fyrir að veðrið hefði að ósekju mátt vera betra. Keppendur komu frá níu þjóðum en hlaupið var hálft maraþon, eða rúmlega 21 km, 10 km og 5 km auk þess sem krakkar fengu að spreyta sig.
�??�?að var 151 sem hljóp á tímatöku,�?? sagði Sigmar �?röstur �?skarsson sem sér um framkvæmd Vestmannaeyjahlaupsins ásamt Magnúsi Bragasyni sem átti hugmyndina og kom hlaupinu af stað árið 2011. Sigurvegarar núna voru Andrea Seppi frá Ítalíu og Laura Costa, bæði frá Ítalíu í hálfmaraþoni, Kári Steinn Karlsson og Eva Skarpaas Einarsdóttir í 10 km og Andri �?ór Gylfason og Ingibjörg Kristjánsdóttir í 5 km.
�??�?að var alveg stórkostlegt að fá 20 til að hlaupa hálft maraþon í 19 metra vindi og rigningu,�?? sagði Magnús. �??�?að voru 30 sem hlupu 10 km og 94 hlupu 5 km,�?? bætti Magnús við.
�??�?að var þremur færra í öllum þessu hlaupum nú en í fyrra eða níu manns sem við teljum ekki mikið miðað við aðstæður. Auk þess hlupu á milli 15 og 20 krakkar,�?? sagði Sigmar �?röstur. �??�?að sem okkur fannst skemmtilegast er hvað ríkti mikill einhugur og gleði í hópnum sem var mjög fjölþjóðlegur. Til dæmis mættu fimm Norðmenn sem komu til landsins eingöngu til að vera með í Vestmannaeyjahlaupinu og fara Sjötindagönguna sem er að verða stöðugt vinsælli hjá þeim sem heimsækja okkur. Tveir úr hópnum hlupu 21 km og þrír 10 km. �?á má ekki gleyma ítalska parinu sem voru sigurvegarar í hálfmaraþoninu,�?? sagði Magnús.
Sigmar �?röstur sagði Vestmannaeyjahlaupið njóta bæði virðingar og vinsælda og var kosið besta útihlaupið á Íslandi á síðasta ári. �??Við höfum frá byrjun verið á toppnum og við reynum að standa undir þeim væntingum. �?að vakti t.d. mikla lukku að við buðum öllum upp á humarsúpu frá Grími kokk sem sló algjörlega í gegn og var vel þegin. Við höfum líka nýtt okkur tölvutæknina í tímatökunni og voru allir keppendur með örflögu sem tók tímann sem var kominn í símann hjá fólki rétt eftir að það kom í mark.�??
�?eir sögðu marga koma að þessu með þeim en Íslandsbanki er aðalstyrktaraðilinn. Auk þess styrkja Ísfélagið, Vinnslustöðin og Grímur kokkur hlaupið. �??Í allt komu um 50 sjálfboðaliðar að þessu með okkur og erum við þakklátir þeim og styrktaraðilum fyrir þeirra framlag,�?? sagði Magnús.
Báðir eru sannfærðir um að Vestmannaeyjahlaupið á framtíðina fyrir sér. �??Að fá hingað 80 manns ofan af landi segir allt sem segja þarf um það. �?etta á eftir að springa enn meira út hjá okkur og það gæti orðið á næsta ári með nýjum Herjólfi,�?? sögðu Magnús og Sigmar �?röstur að endingu.
Geir Reynisson:
Hvernig gekk? Bara mjög vel, ótrúlega sáttur. �?að var fínn hraði þrátt fyrir erfiðar aðstæður og bara glaður að geta hlaupið.
Náðir þú markmiði þínu? �?g eiginlega dró markmiðið til baka í upphafi hlaups út af aðstæðum. �?g hef ekki skoðað tímann minn en ég held að ég hafi verið innan þess tíma sem ég ætlaði mér þannig að ég er mjög sáttur.
Hvað var erfiðast í brautinni? Spyrnubrautin og Hlíðarvegurinn sem mér finnst að ætti að endurskíra og kalla Helvíti á þessum degi og bara mótvindurinn eins og hann lagði sig.
Marta Jónsdóttir:
Hvernig gekk? Bara ágætlega, ég er mjög ánægð, ég kláraði og það var markmiðið.
Hvað var erfiðast í brautinni? Spyrnubrautin, það var hrikalegt, ofsalega mikill vindur.
Var einhver sérstakur tími sem þú vildir ná? Nei, svo sem ekki. �?g var samt að horfa í 45 mínútur og það hafðist þar sem ég var á 43 mínútum.
Kári Steinn Karlsson:
Hvernig fannst þér hlaupið í dag? �?að var stórskemmtilegt eins og alltaf en það tók einstaklega mikið á þetta árið, það blés víða og manni fannst alls staðar blása á móti en bara rosa gaman og hressandi.
Varstu með eitthvað markmið? Nei, í rauninni bara að njóta. Formið hefur oft verið betra þannig að þetta var bara svona að vera með og hafa gaman.
Hver var tíminn? 36 mínútur sléttar sem er með því slakara sem ég hef hlaupið en það blés náttúrulega hressilega og brekkurnar hér erfiðar. En ég man ekki eftir að hafa hlaupið svona hægt lengi en þetta var eins og ég segi fyrst og fremst til að hafa gaman af og njóta þess að hlaupa og gera ekki út af við sig.
Hvernig er best fyrir hinn almenna hlaupara að jafna sig eftir svona hlaup? �?að er bara að fá sér að borða, skella sér í laugina og slaka á.