Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gefur ekki kost á sér í næstu Alþingiskosningum. �?etta kemur fram í tilkynningu sem hún sendi frá sér í morgun.
Eygló kveðst lengi hafa verið sannfærð um að þingmennskan eigi ekki að vera ævistarf og hefur talað fyrir stjórnarskrárbreytingum um að þingmaður skuli ekki sitja lengur en átta ár samfellt á Alþingi. Í nóvember næstkomandi verða komin níu ár hjá henni. �??�?ví tel ég rétt á þessum tímapunkti að láta staðar numið og leita nýrra og skemmtilegra ævintýra á öðrum vettvangi,�?? segir í tilkynningunni.
Eygló tók sæti á Alþingi árið 2008. Hún var félags- og húsnæðismálaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda frá 2013 til 2017. �?á hefur hún verið ritari Framsóknarflokksins síðan 2009.
Eftirfarandi er tilkynning Eyglóar:
Í nóvember 2008 tók ég sæti á Alþingi fyrir hönd Framsóknarflokksins við erfiðar aðstæður í miðju bankahruni. Árin síðan hafa verið einstaklega viðburðarrík og árangurinn af vinnu við efnahagslega endurreisn íslensks samfélags hefur verið mikill.
�?ar hef ég verið stolt af baráttu okkar framsóknarmanna gegn skuldum, hvort sem það eru skuldir heimilanna eða sá skuldaklafi sem erlendir kröfuhafar vildu hengja á þjóðarbúið. �?g er jafnframt einkar stolt af að hafa sem félags- og húsnæðismálaráðherra komið á nýju húsnæðiskerfi, bætt hag lífeyrisþega og unnið gegn ofbeldi í íslensku samfélagi.
�?g hef lengi verið sannfærð um að þingmennska á ekki að vera ævistarf og talað fyrir stjórnarskrárbreytingum um að hver þingmaður sæti ekki lengur en átta ár samfellt á Alþingi. Í nóvember 2017 verða þau ár orðin níu hjá mér. �?ví tel ég rétt á þessum tímapunkti að láta staðar numið og leita nýrra og skemmtilegra ævintýra á öðrum vettvangi.
�?ví mun ég ekki gefa kost á mér til þingstarfa fyrir Alþingiskosningarnar þann 28. október næstkomandi.
�?g vil þakka þeim fjölmörgu sem hafa stutt mig í mínum störfum í gegnum árin, kjósendum fyrir það traust og trúnað sem þeir hafa veitt mér til að starfa í þeirra þágu, góðum félögum út um allt land fyrir gott samstarf og síðast en ekki síst fjölskyldu minni.
�?að er von mín að komandi kosningabarátta verði jákvæð og heiðarleg og að samvinnuhugsjón Framsóknarflokksins muni þar ná góðum hljómgrunni.