Skilja sátt við sumarið og spennandi haust framundan
22. september, 2017
Hjónin Berglind Sigmarsdóttir og Sigurður Gíslason sem eiga veitingarstaðinn Gott skilja sátt við sumarið og segja það svipað og í fyrra. Íslenskir ferðamenn eru aðal gestir þeirra á sumrin og þau mæla með að allir ættu að gefa örlítið extra af sér til ferðamanna, það gæti skilað sér margfalt. �?au horfa björtum augum til framtíðar með stórar hugmyndir í kortunum.
Siggi eins og hann er alltaf kallaður sagði að sumarið á Gott hafi gengið mjög vel og hafi verið sambærilegt og frá árinu áður.
�??�?að fór reyndar aðeins seinna af stað, það voru samgönguerfiðleikar í maí sem hefur að sjálfsögðu bein áhrif á okkar fyrirtæki�?? sagði Berglind.
Nú erum við komin vel inní september og þá væntanlega farið að róast? �??Já það er aðeins farið að róast. �?g hef heyrt frá söluaðilum og fleirum í bænum að það sé eins og Vestmannaeyjar loki í september. �?etta er eitthvað sem við þurfum að vinna okkur út úr og það á eftir að taka einhvern tíma. �?ó svo að allt verði í toppstandi hérna hjá okkur þá er þetta ímyndin sem við höfum. �?að vill enginn ferðasöluaðili skipuleggja ferð sem gæti ekki gengið upp útaf samgöngum, þá er bara auðveldara að skipuleggja hana einhvert annað,�?? sagði Siggi. �?? �?að kann kannski að hljóma leiðinlega fyrir Eyjamenn að alltaf sé talað um ferðamennina en okkar staður mundi aldrei ganga ef við hefðum þá ekki, þó við glöð mundum alveg vilja hafa stað bara fyrir heimafólk. En ef við höfum ferðamennina þá er kominn grundvöllur fyrir starfseminni en við leggjum líka mikið uppúr því að gera vel við Eyjamenn, en við lifum á sumrinu yfir veturinn,�?? sagði Berglind.
Íslenskir ferðamenn koma til Vestmannaeyja til að borða góðan mat
Hjónin segja að íslenskir ferðamenn séu þeirra stærsti kúnnahópur á sumrin. �??Við erum að fá til okkar rosalega mikið af íslenskum ferðamönnum, það má segja að það sé aðal uppistaðan hjá okkur, fólk sem þekkir bækurnar eða merkið Gott, þetta er þá fólk sem er að koma á fótboltamótin, golfmót, þjóðhátíð og Goslok,�?? sagði Berglind.
�??En það er líka eitt og alveg ótrúlegt að segja það, en það er líka fólk sem kemur bara til Vestmannaeyja til þess að koma að borða, nýtir að sjálfsögðu ferðina í fleiri hluti, en er fyrst og fremst að koma til að fá góðan mat. �?etta er nýr vinkill á þessu, við erum komin með marga góða matsölustaði hérna og fólk er að koma eingöngu til að borða, sem er mjög jákvætt. �?g sagði það áður en við opnuðum Gott fyrir fjórum árum, því fleiri góðir staðir sem opna hérna, því fleira fólk kemur hingað, en það þarf að passa að allir hafi sína sérstöðu,�?? sagði Siggi.
�??Ástæðan fyrir því að Gott varð til var vegna þess að svona matsölustaður var ekki til staðar hérna. Gott er mjög ólíkt því sem var þegar til staðar, þó reynsla Sigga sé aðalega við fína veitingastaði en það var ekki það sem vantaði, �?? sagði Berglind.
Sjónarmið Gott laðar að fólk
Aðspurður segir Siggi að það sé mjög misjafnt hvort gestir Gott hafi kynnt sér staðinn áður en það kemur í mat eða komið óvænt inn. �??Heimamenn eru dugleg að benda á okkur, sérstaklega ef fólki langar í fisk eða heilnæman disk sem við erum mjög þakklát fyrir,�?? sögðu hjónin.
Margir ferðamenn afla sér upplýsinga á tripadvisor og svo fellur Gott líka að lífstíl margra ferðamanna. �??Margir ferðamenn sem koma til Ísland eru náttúruunendur, þeir eru oft umhverfissinnaðir og vilja velja holla fæðu og þar stendur Gott, við föllum í þá línu,�?? sagði Berglind. �?að má því segja að staðurinn hafi tvo mjög ólíka markhópa, umhverfissinnuðu ferðamennina sem vilja borða heilnæman disk og fisk, svo litla sjávarþorpið sem vill ekkert endi­-
lega fisk því það er alið upp á fisk.
Af hverju markaðsetjum við ekki Stórhöfða sem vindsamasta stað á Íslandi
Spjallið berst að ferðamannastraumnum til Vestmannaeyja sem er nær eingöngu yfir sumarið, er það eitthvað sem mætti jafnvel bæta? �??Vestmannaeyingar eiga að leggjast á eitt og taka virkilega vel á móti fólki sem kemur hingað, ekki að við séum ekki að gera það, en hafa það sem sérstöðu hérna hvað allt er persóunlegt, maður þekkir það sjálfur ef maður er ferðamaður, ef einhver gefur sig á tal við mann, aðstoðar mann eða sýnir á annaðborð áhuga, maður verður strax miklu sáttari. �?að á að vera auðveldur leikur í svona litlu samfélagi að setja svona frekar auðveld markmið um hvernig við viljum taka á móti fólki hérna.�??
Siggi reddaði einni ferð hjá spánskri fjölskyldu í sumar sem vildi ólm sjá lunda. �??�?g gaf mig á tal við spænska fjölskyldu sem kom til okkar að borða, veðrið var ekkert sérstakt og ég ákvað aðeins að heyra hver plönin þeirra væru. Pabbinn í hópum var frekar niðurlútur því hann hafði lofað þeim að þau mundu sjá lunda, en engan lunda var að sjá. �?g ákvað að segja þeim að staldra aðeins við og fer og athuga þetta, hleyp út í bíl, skil veitingastaðinn eftir, keyri út í Stórhöfða og þar er fullt af lunda. �?g kem til baka, læt þau vita að ég sé búinn að redda þessu, segi þeim að klára að borða og keyri þau svo uppá Stórhöfða og þau sjá lunda. �?ar með var ég búinn að redda ferðinni og þau voru yfir sig glöð, �?? sagði Siggi.
Hjónin voru sammála um að þeim finnst að stór hluti erlendra ferðamanna sem hingað koma séu hérna til að sjá lunda og finnst þeim að við ættum því að nýta okkur pysjuveiðar betur og mögulega lengja aðeins ferðasumarið með því.
Berglind sagði að við þurfum að passa okkar eigin fordóma �??eins og gagnvart rokinu, fyrir marga er þetta algjör upplifun. Af hverju markaðsetjum við ekki Stórhöfða sem vindsamasta stað á Íslandi eða jafnvel heims. �?að höfðu ekki margir trú á því að það væri hægt að ,,selja�?? norðurljósin áður en það var gert. �?að snýst allt um upplifun og hún getur verið á svo margan máta. Eitthvað sem okkur finnst sjálfsagt og jafnvel ómerkilegt og pirrandi getur öðrum þótt áhugavert,�?? segir Berglind.
Ef bæjarfélagið tekur sig saman sem ein heild, þá virkar þetta.
Núna eru svona stopover ferðir mjög vinsælar, ferðamenn koma hingað í þrjá daga og gera eitthvað ákveðið og þarna sé ég tækifæri fyrir Vestmannaeyjar sagði Siggi. �??�?g sá það þegar ég var alltaf að elda fyrir kvikmyndir á sínum tíma. Í þessum ferðum er verið að keyra á Vík til að sjá alvöru fjöru, á annan stað til að sjá hraun o.s.fv., ferðamenn í þessum ferðum eru þar með ekki að skila sér út á landsbyggðina en í Vestmannaeyjum höfum við allan pakkann á einum punkt, nema kannske foss. Okkur vantar bara sterkari markaðssetningu um allt það sem er í boði í Vestmannaeyjum,�?? sagði Siggi. Hjónin voru einnig sammála um að allir eigi að vinna saman, bærinn, fyrirtæki og einstaklingar sem ein heild. Ef bæjarfélagið tekur sig saman sem ein heild, þá virkar þetta.
Stærra og betra Gott
Aðspurð um þær sögusagnir að þau ætli að ráðast í stækkun á húsnæðinu var svarið já. �?? �?að er planið, okkur vantar stærra eldhús. Með svona lítið eldhús eigum við erfitt með að stækka matseðilinn og það takmarkar líka hvað við getum gert,�?? sagði Siggi.
�??Einnig finnst okkur leiðinlegt að vísa frá öllum þeim hópum sem koma hingað og langar að koma til okkar, það væri gaman að geta tekið á móti þeim, �?? bætti Berglind við.
Besta vín Ítalíu á Gott
En hvað er framundan með haustinu? �??Við ætlum að hrista vel uppí matseðlinum og vera reglulega með þemavikur, þ.e. ítalska viku, helgar-sushi og eitthvað í þeim dúr, hreinlega bara hafa gaman,�?? sagði Siggi. Hjónin eru búin að fara nokkrum sinnum til Toscana á Ítalíu og þar kynntust þau vínbónda sem gerir lífræn vín. Hann notar aldagamlar aðferðir án þess að nota öll þessi aukaefni, skordýraeitur o.s.fvr. af mikilli átríðu. Enda fékk hann verðlaun frá forsetanum og vínið hans var kosið besta vín Ítalíu. Vínið er uppselt hjá honum en við náðum að tryggja okkur smá lager og vínið verður á matseðli í haust.
Gott opnar mögulega í Reykjavík
�?að má segja að það sé ekki lognmolla í kringum hjónin, framtakssemin er mögnuð. En mögulega stendur til að opna Gott í Reykjavík. �?? �?að eru ansi margir sem vilja sjá Gott í Reykjavík og er það hugmynd sem við erum að skoða,�?? segir Siggi.
Að lokum, eitthvað sem stóð uppúr í sumar? �??�?jóðhátíðin, það var allt full, við hefðum getað verið með helmingi fleiri borð og stemningin var frábær.�??
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.