�?átttaka í bólusetningu 12 mánaða barna lægst í Vestmannaeyjum
39307024
Fram kom í tíufréttum R�?V í gær að þátttaka 12 mánaða og fjögurra ára barna í bólusetningum hér á landi sé óviðunandi. �?tlar Landlæknisembættið að ráðast í sérstakt átaksverkefni til að fá fleiri foreldra til að mæta með börnin sín í bólusetningar til að sporna við þessari þróun og þar með reyna að koma í veg fyrir að hættulegir sjúkdómar blossi upp. Athygli vakti að þátttaka 12 mánaða barna í Vestmannaeyjum er langminnst og töluvert undir meðaltali.
Í skýrslu embættisins sem kom út fyrir skemmstu kemur fram að þátttaka í bólusetningum hér á landi sé svipuð og á árinu 2015 nema við 12 mánaða og fjögurra ára aldurinn þar sem hún var til muna lakari árið 2016. Segir jafnframt að niðurstaðan sé ekki ásættanleg og ef fram heldur sem horfir, þá geta blossað upp bólusetningasjúkdómar sem ekki hafa sést um árabil. �?ess má einnig geta að nú geisar mislingafaraldur í Evrópu og gætu stök tilfelli sést hér á landi ef þátttöku hrakar enn frekar. Ástæðurnar fyrir dræmri þátttöku eru ekki með öllu ljósar en líklegt er að innköllunarkerfi heilsugæslunnar sé ófullnægjandi fyrir börn á þessum aldri frekar en að fólk sé að neita að láta bólusetja börnin.
Einungis 75% barna bólusett við 12 mánaða aldur
Töluverður munur er milli landssvæða hvað þátttökuna varðar en í Vestmannaeyjum er hún áberandi minni hjá 12 mánaða börnum en gengur og gerist annars staðar á landinu eða 75% á móti 86-90%. �?átttakan í Vestmannaeyjum við fjögurra ára aldur er ívið betri, eða 84%, en þó of lág líkt og annars staðar á landinu að frátöldum Vestfjörðum sem skera sig úr með 97% þátttöku.
Á vef embættisins segir að bólusetningar hafi verið almennar hér á landi í marga áratugi og þátttaka í þeim sé mikil, einkum þegar börn eiga í hlut. Með því að þorri fólks láti bólusetja sig er unnt að mynda svonefnt hjarðónæmi gegn skæðum smitsjúkdómum, sem þýðir að ónæmi gegn þeim verður nægilega algengt í landinu til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómanna, jafnvel þótt vart verði við einstök tilfelli. Vegna almennrar þátttöku landsmanna í bólusetningum hefur ekki verið talin þörf á að gera bólusetningu að skyldu en þess má geta að öll börn með lögheimili á Íslandi geta fengið bólusetningu að kostnaðarlausu.

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.