�?g vil byrja á því að þakka Anítu vinkonu minni fyrir þessa skemmtilegu áskorun. Okkur Anítu þykir rosalega gott og gaman að borða góðan mat og þess vegna tek ég ánægð við þessari áskorun.
Kjúklingaréttur
4 kjúklingabringur
salt og pipar
1 krukka fetaostur
1 krukka rautt pestó
salthnetur eða ritz kex
rifinn ostur.
Fetaosturinn (ásamt olíunni) er settur í botninn á eldföstu móti. Kjúklingabringunum er svo raðað yfir fetaostinn og þær svo kryddaðar með salti og pipar. Pestóinu er smurt yfir bringurnar og rétturinn settur inní ofn í ca. 20-30 mín. Rétturinn er svo tekinn út og salthnetunum eða ritz kexinu er stráð yfir bringurnar. Svo er toppað með rifnum osti. �?etta er bakað í um 10 mín. til viðbótar eða þar til osturinn er bráðinn. Gott að bera fram með fersku salati og hrísgrjónum eða kúskús.
Svo bara verð ég að láta fylgja með uppskrift af einni bestu köku sem ég hef smakkað, en hún slær alltaf í gegn þegar ég baka hana.
Maríukaka
3 egg
3 dl sykur.
�?eytt vel saman.
4 msk smjör
100gr suðusúkkulaði.
Brætt saman og hellt saman við eggjahræruna.
1 tsk salt
1 tsk vanilla
1 & 1/2 dl hveiti.
Blandað varlega saman við.
�?etta er svo bakað við 180°c í 17 mín.
Karmella
4 msk smjör
1 dl púðursykur
3 msk rjómi.
Soðið í þunna karmellu á meðan kakan bakast.
1&1/2 pakki pecanhnetur brytjaður.
Kakan er tekin út og pecanhnetunum stráð yfir, karmellunni er svo hellt þar yfir. Kakan er svo sett aftur inní ofn og bökuð í 17 mín. til viðbótar.
1 plata af suðusúkkulaði brytjuð og stráð yfir kökuna um leið og hún er tekin úr ofninum.
�?g hef ákveðið að skora á góða vinkonu mína, en ég bara hreinlega elska að borða hjá henni. Allt sem hún útbýr er gott og ég get svarið að hún getur örugglega gert soðna ýsu spennandi en það er að mínu mati einn mest óspennandi matur sem ég borða. Silvía Björk, ég sendi boltann yfir til þín.