Grunnskóli Vestmannaeyja hefur undanfarin tíu ár verið í sambandi við þýska skólann Gymnasium Michelstadt eftir að skólarnir störfuðu fyrst saman í Comeníusarverkefninu svokallaða.
Hefur vináttan þróast mikið í gegnum árin en kennarar og starfsfólk GRV fóru fyrst í heimsókn til Michelstadt fyrir um sex árum síðan og var þá strax mikill áhugi fyrir því að gera skólana tvo að vinaskólum. �?að þýðir að annað hvert ár kemur hópur af krökkum frá Gymnasium Michelstadt til Eyja að heimsækja GRV og öfugt.
Í vor kom s.s. slíkur hópur frá Michelstadt í heimsókn til Eyja og nú fyrir stuttu fóru krakkar frá Eyjum, sem reyndar eru komnir í framhaldsskóla núna, til �?ýskalands í sama tilgangi. Um er að ræða afar spennandi kost fyrir nemendur en þarna fá þeir tækifæri til að kynnast krökkum frá öðru landi og þeirra daglega lífi en fyrirkomulagið er með þeim hætti að nemendur gista inni á heimilum gestgjafa sinna.
Blaðamaður ræddi við þrjá nemendur sem ferðuðust til �?ýskalands fyrr í haust, Eriku Ýr, Urði Eir og �?lf. Voru þau öll sammála um að heimsóknin hafi verið vel heppnuð, skemmtileg og fræðandi.
Hér má sjá myndir frá ferðinni
Erika Ýr �?marsdóttir:
Hvernig var að búa inni á ókunnugu fólki? �?egar ég kom fyrst var það mjög stressandi en svo þegar leið á tímann þá var það orðið mjög skemmtilegt.
Var erfitt að eiga í samskiptum við fjölskylduna, töluðu þau góða ensku? �?að var alls ekki erfitt þau töluðu frábæra ensku sem var létt að skilja og létt að tala við þau.
Hver var hápunktur ferðarinnar að þínu mati? Hápunkturinn var að sjálfsögðu þegar við fórum til Frankfurt að versla, fullt af flottum búðum, mæli mikið með.
Hvernig líkar þér �?ýskaland? Mér líkar mjög vel við �?ýskaland, það er bæði mjög gaman að vera þarna og líka mjög fallegt.
Er landið og fólkið ólíkt Íslandi og Íslendingum? �?ýskaland er mjög ólíkt Íslandi, mikið af trjám þar og gömlum og flottum húsum og menningin er allt öðruvísi. �?g myndi ekki segja að það væri mikill munur á fólkinu nema að Íslendingar eru aðeins vinalegri.
Myndir þú mæla með þessari ferð fyrir aðra nemendur? �?g myndi allan tímann mæla með því að fara í svona verkefni með skólanum, sjá hvernig fjölskyldur í �?ýskalandi eru og ef krökkum langar að fara í skiptinám er þetta geðveikt tækifæri til að sjá hvort þér finnist þetta gaman. Mér fannst mér þetta geðveikt gaman og stefni á að fara út til þeirra aftur einhvern tímann.
Urður Eir Egilsdóttir:
Hvernig var að búa inni á ókunnugu fólki? Að búa inni hjá ókunnugu fólki var mjög áhugavert og skemmtileg upplifun. �?að sem mér fannst merkilegast var að fá að vita hvernig þýskar fjölskyldur lifa, hvaða hefðir þau hafa og hvernig mat þau borða.
Var erfitt að eiga í samskiptum við fjölskylduna, töluðu þau góða ensku? Fjölskyldan sem ég gisti hjá talaði ekki mikla ensku en þýska vinkona mín var fín í að þýða þegar foreldrarnir komu með þýskar slettur inn í ensku setningarnar.
Hver var hápunktur ferðarinnar að þínu mati? Hápunktur ferðarinnar var bara að labba um í litlu bæjunum. Mér fannst mjög gaman að sjá byggingalistina á húsunum því þau voru öll svo gömul og skökk.
Hvernig líkar þér �?ýskaland? Fyrir mér er �?ýskaland mjög áhugavert út af sögunni og líka út af flottu byggingunum.
Er landið og fólkið ólíkt Íslandi og Íslendingum? Landið er mjög ólíkt Íslandi. �?ýskaland hefur mikla sögu sem við Íslendingar eru ekki jafn ríkir af. Einnig hefur �?ýskaland mikið af ósnertum gömlum köstulum og húsum sem væri mjög gaman að skoða nánar. �?jóðverjar eru allt öðruvísi en Íslendingar eða allavegana þýsku krakkarnir. �?eim er alls ekki sama um hvað fólki finnst um þá og allir í skólanum eru í gallabuxum sem mér fannst mjög skrýtið því ef þú mættir ekki í gallabuxum í skólann þá horfðu krakkarnir mjög andstyggilega á þig, bara eins og þú værir eitthvað verri en þau en það er það eina sem ég tók virkilega eftir.
Myndir þú mæla með þessari ferð fyrir aðra nemendur? �?g held að allir hafi gott af svona ferð, að prófa að búa hjá öðru fólki. �?að á mögulega eftir að gerast fyrir flesta í framtíðinni að þurfa að gista heima hjá einhverjum sem þú þekkir ekkert endilega þannig að ég mæli með að fara í svona ferð, ekki bara fyrir nemendur heldur líka venjulegt fólk sem hefur gaman af því að ferðast.
�?lfur Hansen:
Hvernig var að búa inni á ókunnugu fólki? �?g þekkti reyndar strákinn minn frekar vel áður en ég kom og hann var búin að lýsa mér svo að þau vissu ýmislegt um mig. Annars var það mjög skemmtilegt og þau komu ofboðslega vel fram við mig. �?au vildu borga allt, töluðu fullt við mig og voru mjög vinaleg.
Var erfitt að eiga í samskiptum við fjölskylduna, töluðu þau góða ensku? Hann átti tvær systur og þau þrjú töluðu frekar góða ensku en foreldrar hans töluðu mjög lítið, hins vegar þýddu þau bara spurningar og svör og það var frekar auðvelt og þægilegt að eiga í samskiptum við þau.
Hver var hápunktur ferðarinnar að þínu mati? Hápunktur ferðarinnar var annað hvort þegar við fórum til Frankfurt í verslunarferð eða til Heidelberg. �?g verð reyndar einnig að segja að kastalarnir/söfnin sem við fórum á voru mjög áhugaverð.
Hvernig líkar þér �?ýskaland? �?g elska �?ýskaland.
Er landið og fólkið ólíkt Íslandi og Íslendingum? Landið er allt öðruvísi, það eru tré eða akrar alls staðar. Fólkið er venjulega frekar strangt miðað við okkur hér á landi og hagar sér svolítið öðruvísi, persónulega finnst mér allir þarna minna vinalegir en hér á landi. �?á er ég ekki að tala um þá sem voru með okkur í hóp, þau voru eiginlega öll mjög fín.
Myndir þú mæla með þessari ferð fyrir aðra nemendur? �?g myndi algerlega mæla með þessari ferð miðað við mína reynslu. �?að er gaman að fara út, en skemmtilegra ef þú ert eða verður vinur nemandans sem þú ert með. �?ú kynnist nýrri menningu og lærir fullt um �?ýskaland og þjóðverjana sjálfa. Ef þú hefur einhvern áhuga á sögu er þetta enn betri ferð þar sem mikið er skoðað af sögu landsins.