Að óbreyttu dregur úr þjónustu HSU
Heilbrigðisstofnun Suðurlands getur ekki sinnt núverandi þjónustu miðað við framlög sem henni eru ætluð í fjárlagafrumvarpinu. Forstjóri stofnunarinnar segir að verkefnum hennar hafi fjölgað mjög hratt. Ruv.is greinir frá.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands varð til úr þremur stofnunum og segir Herdís Gunnarsdóttir forstjóri stofnunarinnar að ársreikningar hennar sýni að halli hafi verið á rekstrinum þar til á síðasta ári þegar veruleg framlög fengust í fjáraukalögum vegna fjölgunar verkefni. �?ví til viðbótar voru skuldir eldri stofnana afskrifaðar. Hún nefnir að 2/3 af nauðsynlegum tækjakaupum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands séu keypt fyrir gjafafé. Heildarframlag til HSU er að núvirði um 8% minna en það var fyrir hrun. Á sama tíma hefur verkefnum fjölgað verulega.
�??Já, verkefni í grunnheilbrigðisþjónustu hjá okkur hafa vaxið mjög hratt. Milli áranna 2015 og 2016 hefur komum á slysa- og bráðamóttöku á Selfossi fjölgað um 16% og sjúkraflutningar í umdæminu aukist um 11%. Á sama tíma fjölgar líka samskiptum í heilsugæslu á Suðurlandi,�?? segir Herdís Gunnarsdóttir.
Hún segir þetta ekki koma á óvart því milli áranna 2015 og 2016 hafi umferð um vegi í umdæminum aukist meira en annars staðar á landinu. Hún segir að reglulega sé fundað með ráðherra og embætismönnum um stöðuna og málefnu HSU séu til skoðunar í ráðuneytinu. Að óbreyttu þurfi að grípa til sársaukafullra aðgerða á næsta ári.
�??�?að er í skoðun. Við erum að vinna í endurskoðun á rekstarþáttum hjá okkur í samvinnu við Velferðarráðuneytið. �?að er ljóst að ef fjárlög ársins 2018 verða óbreytt þá getum við ekki sinn núverandi þjónustu. �?að væri alltaf verri kostur og dýrari þegar upp er staðið.�??

Nýjustu fréttir

Óskar og Sigurjón margfaldir aflakóngar
Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.