Sjálfstæðismenn með fund í Skipalyftunni í hádeginu á morgun
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi efnir til opins hádegisfundar í Vestmannaeyjum á morgun, þriðjudag, klukkan 12:00. Fundurinn fer fram í húsnæði Skipalyftunnar að Eiðisvegi. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi.
Fundaröðin hefst í Vestmannaeyjum en þar munu Páll Magnússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og Ísak Ernir Kristinsson ræða um málefni Vestmannaeyja. Fundargestum gefst tækifæri til að ræða við frambjóðendur um komandi alþingiskosningar og önnur mál.
Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.