Elliði Vignisson: Stór mál í hvert skipti sem röskun verður á ferðum Herjólfs
Í samtali við Eyjafréttir svaraði Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, því neitandi er hann var spurður hvort Vestmannaeyjabær hafi ekki sent beiðni um rannsókn á þeim ákvörðunum sem urðu til þess að Vestmannaeyjar urðu án samgangna á sjó í frátöfum Herjólfs sem síðan kom jafn bilaður til baka.
�??Jú auðvitað er búið að senda slíkt erindi og það bæði á Samgöngurráðuneytið og nefndarsvið alþingis. Hjá okkur er verkferillinn þannig að þjónustuver tekur allar fundargerðir og sendir erindi á viðkomandi í kjölfar fundar. �?essi erindi eru síðan skráð í skjalakerfi okkar og því auðvelt að fylgjast með framvindu þeirra. Fyrsti póstur var sendur á Samgönguráðuneytið 29.09 kl. 09:25 og síðan var póstur sendur á ábyrðaraðila nefndarsviðs 4.10 kl. 08:22.
Eðli málsins samkvæmt veit ég hinsvegar ekki hvernig málin eru svo unnin áfram hjá nefndarsviði en ég reikna með því að það eigi að ganga hratt og örugglega fyrir sig og erindið komi til afgreiðslu þar velji nefndin á annað borð að vinna málið áfram í samræmi við vilja okkar.
�?að er stór mál í hvert skipti sem röskun verður á ferðum Herjólfs. Um það þarf ekki að efast. Oft verður slíkt af óviðráðanlegum ástæðum svo sem vegna veðurs. Í seinasta tilviki þykir okkur hinsvegar felst benda til að röð mistaka og missklings hafi valdið miklum skaða fyrir okkur hér í Eyjum og valdið ríkinu umtalsverðu fjártjóni. �?að viljum við að verði skoðað sérstaklega til að fyrirbyggja slíkt í framtíðnni. Við höfum hinsvegar ekki neitt forræði í þessu og verðum því fylgjast með því hverju framvindur hjá nefndinni en svo mikið er víst að erindið hefur verið sent til þeirra.�??

Nýjustu fréttir

Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Krakkafjör í Hvítasunnukirkjunni
​Byggjum upp framtíðina
Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.