Ari Trausti Guðmundsson: Valkostur til breytinga
Við erum öll með á nótum þegar spurt er í hvaða málaflokkum úrbætur eru næstar og brýnastar í samfélaginu, bæði á landinu öllu og í Eyjum. Menn nefna án mikillar umhugsunar: Heilbrigðismál, kjör aldraðra og öryrkja, húsnæðismál, samgöngur og úrbætur í menntamálum. Veruleg samstaða er um hvað í málaflokknum þarf að lagfæra. Fleira kemur til í máli manna svo sem umhverfis- og loftslagsmál, atvinnugreinarnar og stjórnarskráin. �?á taka átakalínur að lita talið og það gildir einnig þegar rætt er um hvernig skuli standa að umbótum og hvar afla eigi fjár til þeirra. Pólitík er að stórum hluta grunduð á ólíkri afstöðu manna til þess hvernig samfélaginu á að vinda fram; við byggjum afstöðuna á lífsviðhorfum og hugmyndafræði. Núna hafa orðið til fleiri stjórnmálahreyfingar á Íslandi en nokkru sinni áður. �?að tel ég stafa að uppbroti í samfélaginu við efnahagshrunið. Efnahagsmál í heiminum, opnun milli landa, afdrifarík hlýnun, ófriður víða og óöryggi fólks koma líka við sögu, þrátt fyrir aukna velmegun að meðaltali á Íslandi – sem um leið einkennist af vaxandi ójöfnuði og óþoli.
Mikilvægt er að stjórnmálaflokkur, sem stefnir að auknum jöfnuði, meira jafnrétti, traustum samfélagsrekstri þegar kemur að grunnþörfum okkar og að frelsi með ábyrgð, tali skýrt og málefnalega. Vissulega kjósa margir með hjartanu eins og sagt er og láta lífsviðhorfið ráða, sem er um margt ofureðlilegt, en atkvæðinu er enn betur varið en ella ef málefnaafstaða flokka er líka höfð með.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð boðar umbætur til næstu fjögurra ára og svarar þannig ákalli mikils meirihluta þjóðarinnar – með sínum hætti. Við teljum gerlegt að mynda félagshyggjustjórn sem fetar aðrar og betri leiðir en tvær síðustu ríkisstjórnir. Á það fallast alls ekki allir og þar við situr. Lykilatriði er að afla ríki og sveitarfélögum tekna hjá þeim sem eru svo sannarlega aflögu færir, hlífa öðrum þegnum, færa til þeirra fjármuni og einnig til margvíslegra umbóta sem kallað er eftir og ekki stóð til að framkvæma samkvæmt fjármálastefnu síðustu ára. Slíkt útheimtir þor, yfirvegun, sanngirni og stöðugleika. Um leið má bæta eitt og annað í ríkisrekstrinum. VG er í stakk búið til að leiða alla þessa vinnu undir traustri forystu Katrínar Jakobsdóttur, í samvinnu við þá sem ná saman um samfélagslegar lausnir í áföngum í heilt kjörtímabil… og lengur en það.
Höfundur er í 1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.