Eins og að opna pakka að koma í nýtt og framandi land
Eyjamærin Kolbrún Inga Stefánsdóttir er sannkallaður heimsborgari, hún hefur ferðast mikið síðustu ár og sló ekki slöku við þegar hún eignaðist son sinn Atlas Neo í apríl 2016 með kærasta sínum Carli sem er norskur. �?au fjölskyldan eru búin að ferðast til 15 landa síðan Atlas Neo fæddist og eru hvergi nærri hætt.
Kolbrún Inga Stefánsdóttir er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Hún er dóttir Stefáns Birgisson og Svövu Gunnarsdóttur. Fyrir nokkrum árum fluttist Kolbrún til Kína og má segja að síðan þá hefur hún verið á flakki milli landa að láta drauma sína rætast.
�?egar blaðamaður heyrði í Kolbrúnu var hún stödd á eyju í Filipseyjum þar sem netsamband var lélegt en þetta hafðist allt. Daginn eftir var fjölskyldan á leiðinni á aðra eyju sem heitir El Nido og ætlar eyða þar næstu tveimur vikum.
�?? �?aðan förum við til Hong Kong í tvær vikur, svo til Kína að hitta Bigga bróður og fjölskyldu hans. Eftir Kína förum við til Thailands og erum ekki búin að ákveða hvað við verðum lengi þar. Við erum ótrúlega spennt fyrir komandi tímum�?? sagði Kolbrún.
Fjölskyldan hefur ferðast til 15 landa á síðustu 18 mánuðum en Kolbrún sagði það ekkert mál að bæta við ferðafélaga þegar Atlas Neo fæddist. �??�?g og Carl höfum alltaf elskað að ferðast. �?egar ég varð ólétt þá urðum við bæði mjög hrædd um að þyrftum að leggja þessi ferðalög á hilluna og fara að sinna nýjum verkefnum. En svo áttuðum við okkur á því að sjálfsögðu er hægt að bæta einum ferðafélaga í hópinn og vorum strax byrjuð að plana ferðalög áður en Atlas kom í heiminn. Carl vinnur við online marketing sem þýðir að hann getur unnið hvar sem er í heiminum og vildum við nýta þetta frábæra tækifæri að skoða heiminn áður en Atlas byrjar í skóla�?? sagði Kolbrún.
�?akklát fyrir að hafa fæðst á Íslandi
En hvað er það sem heillar þig mest við að ferðast?
�?? �?etta er eins og að opna pakka að ferðast til nýrra landa, þú veit ekki hverju þú átt að búast við. Við höfum alveg lent í því að fara á staði og litið á hvort annað, ,,hvað erum við að gera hérna�??. Við fórum til dæmis til Kúbu í 5 daga og ég er viss um að það sé yndislegt að fara þangað með vinum eða maka og sitja á bar og dansa salsa. En að koma þangað með lítið barn er ekkert sem ég myndi mæla með. Við vorum stoppuð á hverju horni af fólki með lítil börn, bæði búin að kúka og pissa á sig, að biðja okkur um bleyjur, mat og pening. Að sjálfsögðu vill maður geta hjálpað öllum en það er því miður ekki hægt. �?að tók mikið á mömmuhjartað að vera þarna og vorum við þakklát fyrir að þetta voru bara 5 dagar en á sama tíma kenndi þetta manni að vera þakklátur fyrir litlu hlutina í lífinu.
Staðurinn sem hefur komið okkur mest á óvart er Playa del Carmen í Mexico. Við vorum þar í tvo mánuði og gætum alveg hugsað okkur að búa þar. Maður þarf að sjálfsögðu að finna öruggt og gott hverfi til að búa í, maður stekkur ekki bara á það ódýrasta þegar kemur að löndum eins og Mexíkó. Okkur leið mjög vel þarna, gullfallegar staður og auðvelt að fara í dagsferðir á eyjarnar í kring, góður matur og fólk var mjög vinalegt.
Vorum svo ótrúlega heppin að fá mömmu og pabba í heimsókn til okkar og vorum við öll sammála að þetta væri staður sem maður væri mikið til í að fara aftur á. Mæli með fyrir alla að fara þangað.
Annars hef ég lært svo ótrúlega mikið á því að ferðast. Maður kynnist nýju fólki á hverjum einasta degi. �?ótt það sé mjög gaman að skoða öll þessu lönd þá verður maður er alltaf meira og meira þakklátur fyrir að hafa fæðst á Íslandi.�??
�?að er full vinna að hugsa um barn, heima og í útlöndum
Hvernig er að búa í ferðatösku með lítið barn? �??Að búa með lítið barn í ferðatösku getur verið krefjandi, sérstaklega þegar við erum að koma okkur á milli staða. Á sumum stöðum eru t.d. engir bílar og þá getur verið pínu púsluspil að koma okkur á áfangastað en sem betur fer er fólk virkilega almennilegt og hjálpar manni alltaf en aldrei hefði mig grunað hversu mikill farangur myndi fylgja litlu barni. Annars er þetta ótrúlega mikið ævintýri og við njótum þess í botn. Eitthvað sem ég mæli með fyrir alla að upplifa.
�?að sem mér finnst búið að vera ómissandi þegar þú ferðast með barn er jetkids, það er flugferðataska sem er með geymsluhólf fyrir dót og er flugferðarúm. Við tökum alltaf barnapeltór með í flug og látum á hann þegar/ef hann sofnar svo hann vakni ekki við nein aukahljóð. Góða kerru og burðarpoka. Mæli mikið með að taka töfrasprota til að mauka ef barnið er ekki byrjað að borða mat, man séstaklega eftir þvi í Víetnam, þá voru þau hvergi með barnamat og það bjargaði okkur að hafa sprota. Við vorum með Atlas í moskító tjaldi þegar hann var yngri og létum hann taka lúrana sína þar á daginn svo hann yrði ekki stunginn. En svo er gott að hafa bak við eyrað að þótt maður sé í fríi frá vinnu þá er full vinna að hugsa um barn hvort sem það sé heima hjá sér eða í útlöndum.�??
Thailand er eitthvað sem allir verða heimsækja
Ef þú ætti að mæla með einum stað í Asíu sem fólk ætti að ferðast til, hver væri það og af hverju?
Ef ég ætti að mæla með einum stað til að heimsækja þá verð ég að segja Tæland. Held að enginn hafi farið þangað og verði vonsvikinn, fólk er einstaklega vinalegt þar, ótrúlega fallegt, æðislegur matur og virkilega ódýrt að lifa góðu lífi. �?g bjó þar áður en ég átti Atlas og elskaði það og varð pínu hrædd um að ég myndi ekki njóta þess eins mikið að vera þarna með lítið barn en mér skjátlaðist ef eitthvað er þá varð ég bara meira heilluð að landinu. Fólk miklar oft fyrir sér að fara til Tælands og heldur að það sé mjög dýrt en það er það alls ekki. Bara að panta flugið tímalega og ekkert að drífa sig að panta hótel, því þau lækka bara í verði því sem nær dregur. Mér finnst best að taka 2-3 daga í Bangkok og taka svo flug til Phuket og þræða svo eyjarnar þaðan. Eitthvað sem ég mæli með fyrir alla að gera á lífsleiðinni.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.