Seldi allar myndirnar á fyrstu sýningunni
{"DeviceAngle":0.002610677154734731}
{"DeviceAngle":0.002610677154734731}
Hinn níu ára gamli Ástþór Hafdísarson er einn af mest spennandi upprennandi listamönnum Vestmannaeyja um þessar mundir en hann hefur getið sér gott orð fyrir geometrískar teikningar sínar af öllu milli himins og jarðar. Ástþór kíkti við hjá Eyjafréttum á dögunum, ásamt móður sinni Hafdísi Ástþórsdóttur, eiganda Dízó hársnyrtistofu, og ræddi við blaðamann um þessa nýuppgötvuðu listgáfu sína.
Ásamt því að verkin séu geometrísk segir Ástþór teikningar sínar oft og tíðum bera þess merki að vera abstrakt. �??�?g sá bara eitthvað svona á netinu og ákvað bara að prófa en ég er samt ekki að herma eftir öðrum. �?g hafði eitthvað aðeins teiknað áður, snáka og svona, og alltaf haft gaman að því,�?? segir Ástþór sem á sér þó ekki sérstaka fyrirmynd í bransanum. �??Hann hefur alltaf verið listrænn og haft gott auga fyrir hinu og þessu en í vor byrjað hann fyrst að gera stök verk,�?? bætir Hafdís við.
Hélt sýningu á �?jóðhátíð
Fyrsta sýningin var haldin á �?jóðhátíðinni og seldust allar 11 myndirnar sem voru til sýnis. �??Við vorum bara með sýninguna inni í tjaldinu okkar, bæði á föstudeginum og sunnudeginum. Við keyptum ramma í Ikea og hengdum upp og það kom alveg hellingur af fólki að skoða og allar myndirnar seldust. Flestir sem keyptu voru skyldfólk okkar og norskir vinir systur minnar sem voru gestir á �?jóðhátíð,�?? segir Hafdís.
Í fyrstu teiknaði Ástþór einungis með blýanti en eftir fyrstu sýninguna fór hann að nota penna og færa sig meira yfir í geometrískar myndir. Nú hefur þú m.a. gert bjarndýr að viðfangsefni þínu, ertu aðallega að einblína á dýr eða teiknar þú bara hvað sem er? �??�?g hef teiknað tvö dýr en annars teikna ég bara hvað sem er. Fyrst teiknaði ég oft fjaðrir en hef síðan verið að teikna luktir sem var eiginlega óvart því ég var að reyna að gera lampa,�?? segir Ástþór.
Heldur úti Instagram síðu
Nú er Ástþór kominn með Instagram síðu, ÁstArt08, þar sem m.a. er hægt að sjá ýmis verk og fylgjast með honum teikna.
En hafa krakkarnir í bekknum þínum áhuga á þessu? �??Nei, ekkert sérstaklega,�?? segir Ástþór sem þó heldur utan um fámennt en góðmennt teiknifélag sem saman stendur af þremur meðlimum. �??Mig langar ekki að hafa of marga í teiknifélaginu,�?? bætir formaðurinn við án þess að útiloka neitt.
Samkvæmt mæðginunum er töluvert af nýju efni tilbúið og er stefnan sett á sýningu fyrir áramót ef hentugt húsnæði finnst. �??Við höfum verið að pæla í því en það er ekkert planað, en okkur langar að halda sýningu fyrir áramót,�?? segir Hafdís að endingu.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.