Smalað í Álsey - myndir
Hópur manna fór með björgunarbátnum �?ór út í Álsey í hádeginu þann 11. oktober. Frændurnir Heiðar Hinriksson og fjallkóngurinn Kristinn Karlsson höfðu farið áður á tuðru Kristins til að gera klárt fyrir smalamenn sem voru á leiðinni. LJósmyndari Eyjafrétta �?skar Pétur Friðriksson var með í för og segir hér frá.
Til stóð að fara mun fyrr í smalaferðina og nota góðan laugardag eða sunnudag til verksins, veðurguðinn er ekki alltaf á sömu skoðun og fjárbændur hvenær veðrið á að vera best þannig að núna varð að fara úr vinnu í miðri viku til að smala fénu og koma því til byggða.
�?egar lagt var að stað í hádeginu á miðvikudeginum, var veður gott og leit vel út með smalaveður. Eftir stutta siglingu með �?ór fóru smalamennirnir í land í Álsey. Álsey er þannig gerð að ekki þarf um mikið berg að fara til að komast upp á hana, bergið er um 7 metra hátt en nú vildi svo til að allt var blautt eftir rigningu næturinnar. Bergið var því sleipt og það varð að fara upp með varkárni og passa sig á að renna ekki á sleipu grjótinu, grasið var að sjálfsögðu blautt líka.
Aðrir sem komu með í þessa ferð út í Álsey voru eftirtaldir:
Guðni Hjörleifsson, fjárbóndi, Haraldur Geir Hlöðversson, fjárbóndi, Ágúst Ingi Jónsson, fjárbóndi, Loftur Rúnar Smárason, bifvélavirki, Friðrik Benediktsson, steypubílstjóri, Birkir Helgason, stálsmiður og Jón Helgi Sveinsson, olíubílstjóri, auk frændanna sem áður er getið.
Strax og menn voru búnir að losa sig við bakpoka og töskur er upp á eyjuna var komið, var hafist handa við að gera réttina klára, aðrir fóru að gera leiðara frá réttinni og upp eftir eyjunni til að stýra fénu í réttina. �?egar réttin var tilbúinn fóru þeir menn sem það gerðu upp eftir eyjunni og byrjuðu að smala, við hinir héldum áfarm að gera leiðarann klárann. Nú fór að rigna á okkur og var úrkoma að mestu á meðan við vorum í eyjunni. Um það leiti sem leiðarinn var að verða tilbúinn komu smalamenn með féð og það rann fljótlega í réttina. Nú varð að stía réttina af þar sem ærnar voru settar öðru megin og lömb hinu megin. �?etta gekk vel og ánum var svo sleppt og gengu þær frelsinu fegnar í burtu og átu sitt gras. �?rnar voru ekki að fást um það þó lömbin væru höfð í réttinni, þær fóru sína leið.
Nú fór að styttast í að Lóðsinn kæmi til að sækja lömb og smala. Guðni Hjörleifs og Kristinn fóru að taka niður leiðarann og eftir það í tuðruna til að taka á móti fénu. Tveimur lömbum var komið fyrir í neti sem hengt var í sleppikrók sem hangir í vír sem liggur frá eyjunni og út í sjó, �?ar var lömbunum slakað niður í tuðruna sem sigldi með þau út í Lóðsinn en um borð voru þeir Regin húsasmiður og Ingvi pípari sem tóku á móti fénu. �?egar búið var að slaka niður öllum lömbunum og því dóti sem í land átti að fara var lagt af stað aftur til baka, enn var grasið blautt eftir rigningu dagsins og bergið hálft eins og reikna má með. �?g fór fyrstur niður bergið og rólega fór ég, þar sem önnur höndin er hálf ónýt og kraftlítil og því var að vera var um sig og halda fast í bandið til að slasa sig ekki eða hrapa niður. Kristinn fjallkóngur kom á fullu gasi á tuðru sinni og tók mig um borð, eins og alla hina sem í eyjunni voru.
Hér má sjá myndir frá smöluninni

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.