�?að er laugardagskvöld og veðrið eins gott og það getur orðið að hausti til í Vestmannaeyjum. Sjónvarpið hundleiðinlegt og hvað er þá til ráða, er ekki málið að kíkja aðeins út á lífið og sjá hvað skemmtanalífið hefur upp á að bjóða.
�?að var gert, eldra fólk úr Vesturbænum lagði í�??ann með stefnu á Tangann sem er í skemmtilegu húsi við bryggjukantinn þar sem smábátahöfnin blasir við. �?ar tók Berglind Kristjánsdóttir á móti gestum og færði í hendur starfsfólks sem þjónuðu öllum af mikilli alúð. Veitingastaðurinn er einstaklega vel heppnaður og umhverfið frábært. Að sitja nánast á bryggjusporðinum og fylgjast með skipum koma og fara er einstök upplifun. Sjá líka ljós skipanna speglast á tjarnsléttum sjónum gerði þetta enn skemmtilegra.
Eins og áður segir var þjónustan góð og það má líka segja um matinn sem smakkaðist prýðilega og var fallega fram reiddur. Verðið líka sanngjarnt. �?arna er notaleg stemning, ekki truflandi tónlist og tíminn leið hratt. Og það voru þakklátir gestir sem yfirgáfu staðinn en enn var nóttin ung.
Kúrsinn var tekinn á Bræðrabrugghúsið, Brothers Brewery við Bárustíg þar sem Jóhann Guðmundsson og Hannes Eiríksson stóðu vaktina. Laugardagurinn var lokahnykkurinn á Októberfestinni hjá Bræðrabrugginu þar sem hápunkturinn var bingókvöldið á fimmtudeginum þar sem var fullt hús og mikið fjör.
�?etta kvöld var nánast hvert sæti skipað og notalegheit svifu yfir vötnunum. �?eir státa af fjölbreyttri eigin framleiðslu og nær Jóhann fluginu þegar kemur að því segja frá þeim fjölmörgu tegundum sem þeir bjóða upp á.
Meðal gesta þetta kvöld voru ung hjón frá Texas, Michael og Patrica Tyler frá New Braunsfels. �?au fylgdust með af athygli þegar Jóhann náði hæstu hæðum í bjórlýsingum sínum. Áhuga gestanna má rekja til þess að New Braunfels er þýskur bær og þar er mikil og sterk hefð fyrir bjór.
�?au undu sér vel og voru ánægð með bjórinn. �?að athyglisverða er að tveimur klukkustundum áður en að þau voru sest inn á Bræðrabruggið höfðu þau ekki hugmynd um að Vestmannaeyjar væru yfir höfuð til. Sáu heimreiðina frá þjóðvegi eitt og létu slag stand. Komu að ferjunni og ákváðu að drífa sig yfir og sáu ekki eftir því.
Enn var nóttin ung þegar fólkið úr Vesturbænum lagði af stað heim á leið, södd og ánægð eftir þennan stutta skrens um næturlíf Vestmannaeyja sem ekki kostaði svo mikið þegar upp var staðið.