Sigurður Ingi: Samgöngur til Eyja
Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum eru og hafa verið mál málanna í Eyjum. Frá því að Landeyjahöfn var opnuð var ljóst að ekki myndi takast að nýta hana að fullu þar sem núverandi skip, Herjólfur, hentar ekki til innsiglingar í höfnina. �?ví miður hefur það dregist úr hófi, að hanna og smíða nýtt skip sem hentar Landeyjahöfn. Einnig var vitað að það myndi taka þónokkur ár ef ekki lengri tíma að þróa og aðlaga sandhöfnina við Landeyjar að þeim þörfum sem ferjusiglingar kalla á allt árið.
Eigi að síður var stórt skref tekið og margir urðu glaðir þegar Landeyjahöfn var opnuð. Möguleikar fólks og fyrirtækja að nýta hana opnaði nýja vídd í samgöngum milli lands og Eyja. �?ó voru þeir til sem gagnrýndu og töldu að þessi nýja vídd myndi ekki gagnast sem skyldi vegna þess að Herjólfur hentaði ekki og Landeyjahöfn væri stórgölluð, og höfðu þeir nokkuð til síns máls. Hitt er þó öllum ljóst að tækifærin sem öflug ferja og Landeyjahöfn gefa, hafa og munu gjörbreyta öllum samgöngum til og frá Eyjum til hins betra. Auðvelt er að benda á ferðaþjónustuna og vöxt hennar sem dæmi um það.
�?rátt fyrir ólíkar skoðanir manna um nýja ferju, stöðuna í Landeyjahöfn og rekstrarform ferjusiglinganna er eitt sem allir geta verið sammála um, að núverandi aðstæður eru með öllu óverjandi.
�?að sem þarf að gera
1. �?g hef oft nefnt, að þegar nýtt skip kemur verður �??gamli Herjólfur�?? að vera til taks um einhvern tíma, til að tryggja að hægt verði að sigla til �?orlákshafnar þegar veður og aðstæður hamla siglingum til Landeyjahafnar og á meðan reynsla kemur á nýtt skip. �?g hef talað fyrir þessu og í mínum huga er þetta skýrt.
2. �?g er sammála að skynsamlegt er að taka hugmyndum fagnandi um að Vestmannaeyjabær sjái um rekstur ferjunnar. Enginn er betri til að meta þörfina en heimamenn sjálfir.
3. Tryggja þarf sama gjald, óháð því í hvora höfnina er siglt. Allir eiga að geta nýtt sér samgöngur milli staða óháð búsetu og efnahag. Við Framsóknarmenn höfum viljað setja þetta inn í byggðaáætlun.
4. Halda áfram að hanna og þróa Landeyjaeyjahöfn. Brýnt er að fá mat frá nýjum óháðum aðila áður en haldið er áfram með verkefnið.
Til viðbótar þá verðum við Íslendingar að setja okkur stefnu um almenningssamgöngur um land allt. Einnig flugsamgöngur. Fyrirmyndir eru til í öðrum löndum t.d. í Skotlandi.
Næsta ríkisstjórn og Alþingi verða að taka á þessum hlutum. �?ar mun ekki standa á okkur Framsóknarmönnum. Við höfum skýra sýn á hvað þarf að laga, afl og kraft til að fylgja því eftir. Við höfum margoft sýnt það í verki.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.