Einar Kristinn: Lýðskrum eða mannvonska
Í síðasta baksíðupistli mínum talaði ég um góða stjórnendur og þá mannkosti sem liggja þar á bakvið. Að þessu sinni ætlaði ég að tala um eitthvað allt annað og léttara eins og þistilhjartað sem Jónas á Fiskibarnum matreiddi fyrir mig á föstudaginn eða kvikmyndina Blade Runner, gamla framtíðarhasarinn frá 1982, þar sem Harrison Ford í hlutverki Rick Deckard leitar uppi og drepur svokallaðar eftirmyndir en fer svo að efast um sjálfan sig, hvað sé mennskt og hvað ekki.
Í staðinn ætla ég að ræða eitt sem mér þykir sorglegt. �?að er að stilla upp tveimur viðkvæmum samfélagshópum gegn hvor öðrum, annars vegar hælisleitendum og flóttamönnum og hins vegar öryrkjum og öldruðum. Að slá því föstu að orsök þess að öryrkjar og aldraðir líði skort á Íslandi sé vegna þess hve kostnaðarsamt það sé að taka á móti fólki í neyð finnst mér afskaplega sorglegt, í besta falli lýðskrum en í versta falli mannvonska. Að ganga út frá því að þorri fólks sem kemur hingað til lands, í von um öryggi og betra líf, sé að gera það á fölskum og vafasömum forsendum og að þetta fólk lifi einhverskonar lúxuslífi á meðan fjöldi Íslendinga sveltur í hel finnst mér líka fráleitt. Bara svo því sé haldið til haga þá er ég ekki að halda því fram að margir Íslendingar búi ekki við örbirgð, þvert á móti. �?g geri mér fyllilega grein fyrir þeim ömurlega veruleika sem margir búa við hér á landi, á sama tíma og enn þá stærri hópur er önnum kafinn í lífsgæðakapphlaupi og innantómum hégóma.
�?að ætti að vera hægt að forgangsraða öðruvísi og verja fjármunum í þá sem brýnast er að bjarga eins og t.d. öryrkja og aldraða. En á sama tíma á einnig að vera hægt að axla ábyrgð í alþjóðlegu samhengi og sýna gott fordæmi og snúa ekki baki við fólki sem hrökklast hefur í burtu frá heimalandi sínu vegna óaldar sem þar kann að ríkja. �?að er enginn að leika sér að því að sækja um hæli.
�?að er alveg rétt að sömu krónunni verður ekki eytt tvisvar en hvað með alla þá fimm milljarða sem ríkið greiðir ár hvert í sauðfjárræktun og hefur skuldbundið sig til að greiða næstu tíu árin? Eða þá sex milljarða sem fara í nautgriparæktun ár hvert? Væri ekki tilvalið að spara einhverjar krónur þar og reyna kannski að koma í veg fyrir þá offramleiðslu og matarsóun sem við stöndum frammi fyrir núna, því eitthvað hlýtur hún að kosta. �?g bara spyr.
Til fróðleiks – skilgreining á lýðskrumi: �?að að vinna hylli eða höfða til almennings með ómerkilegum hlutum, einkum af stjórnmálamönnum.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.